![]() |
![]() B*design tekur að sér að hanna og uppfæra vefsíður, hanna fyrirtækjamerki (logo) og auglýsingar, hýsa vefi og panta lén og tölvupóst. Það sem einkennir vefsíðugerð B*design er að verðið er mun lægra en gengur og gerist í þessum bransa án þess að það bitni eitthvað á útkomu vefsins. Verð vefsins fer þó algjörlega eftir stærð hans. Ef það vantar ljósmyndir fyrir vefsíðuna bjóðum við upp á að koma á staðinn og taka nokkrar myndir fyrir vefinn nánast að kostnaðarlausu, það fer þó eftir staðsetningu. Fagmannlega gert útlit vefsíðu ásamt innihaldi hennar skilar sér í góðri kynningu á því efni sem tekið er fyrir hverju sinni. Jafnvel gæti það aukið viðskiptin, sérstaklega þar sem að tölva með internet tengingu er orðinn sjálfsagður hlutur í Evrópu og víðar. Oft telst það nauðsynlegt að uppfæra vefi með reglulegu millibili til að miðla nýjum eða breyttum upplýsingum til viðskiptavina og bjóðum við upp á að uppfæra vefinn reglulega. Verðið fer algjörlega eftir hve oft þarf að uppfæra vefinn og hve mikill tími fer í uppfærsluna. Þeir/þær sem eru að fá sína fyrstu vefsíðu eiga oft ekki neinn tölvupóst og bjóðum við upp á að bjarga þeim málum, ásamt því að sækja um lén fyrir vefsíðuna. Hagstæðast er að kaupa lén sem enda á .com eða .net og væri þá hægt að fá hjá okkur tölvupóst með sömu endingu og lénið. Dæmi um lén væri t.d. www.flottfyrirtaeki.com og væri þá tölvupósturinn t.d. siggi@flottfyrirtaeki.com. Til þess að vefurinn og pósturinn virki þá þarf að hýsa vefinn einhversstaðar. Við bjóðum upp á hýsingu á lágu verði. Ef áhugi er fyrir þessari þjónustu eða ef ykkur vantar svar við einhverjum spurningum varðandi þessa þjónustu þá endilega sendið okkur póst og við munum svara honum eins fljótt og unnt er. B*design býður upp á nokkra tilboðspakka. Fyrir þá sem vilja athuga tilboðin nánar þá er hægt að smella hér á tilboð.
|
Skilaboðaskjóðan
|