Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

Gleðilegt ár og tilheyrandi læti
04.01.06 .

Það er svo langt síðan að ég bloggaði að ég ætla barað byrja á því að segja: AHHH!! ERLA TIL HAMINGJU MEÐ STÚDENTINN!! :)
J
á nú er bara komið árið 2006!! Hver bjóst nú við þessum undarlegheitum, að 2006 kæmi eftir 2005... ég veit ekki hvort þið eruð hissa en ég verð að segja að ég er enn hér að jafna mig. Annars er hátíðartímabilið búið að vera verí verí lovlí eins og útlenska fólkið orðar það. Á Aðfangadag vorum við í mat hjá tengdó og fengum þar rosalega góðan hamborgarahrygg, sætar kartöflur og fleiria tilheyrandi. Við opnuðum svo pakka saman og fengum gott kaffi. Eftir þetta þá héldum við Erla upp í sveitina til fjölskyldu minnar. Það var rosalega kósí þar hjá þeim og fengum við heimatilbúinn ís og heita Marssósu...mmmmmmm! Héldum svo áfram að opna pakka hjá þeim og vorum hjá þeim til ca. 1-2 um nóttina. Að lokum héldum við í kjallarann okkar og vorum við þar með nokkrar gjafir til hvors annars. Seinasti pakkinn frá mér til Erlu krafðist hnékrjúpningar þar sem að ég ákvað að biðja hennar á þessu yndislega kvöldi. Hún hrópaði JÁááá! af gleði áður en ég fékk að klára mína stuttu ræðu :) Við skáluðum svo í jarðarberjakampavín og töluðum hippalega saman (hipplegt samtal inniheldur ástríðufullar setningar ásamt tilheyrandi) :) Þetta var afskaplega vel heppnaður dagur og kvöld í alla staði og var maður brosandi af gleði og kátínu allan daginn. Maður fékk líka alveg helling af geeeðveikum jólagjöfum, m.a.; geðveikt flottan frakka, iPod nano, bækur, dvd myndir, ps2 leiki (God of War, Buzz og Soul Calibur III), rosalega gott kaffi og kaffibolla, föt o.fl. o.fl. Við Erla fórum svo í nokkur jólaboð eftir þetta og voru þau öll vel heppnuð og skemmtileg.
Áramótin voru líka yndi og æði! Vorum í mat hjá mömmu og pabba og fengum þar sjúklega góðan kalkún með æðismæði fyllingu. Svo var helling af PANGPANG og læti! Sá mömmu og Erlu í fyrsta skipti kveikja í flugelda :) Það var baaara fyndið. Skáluðum svo kl. 00:00 í nýju freyðivínsglösin okkar sem að þau gáfu okkur og svo fórum við Erla og Óli í partý hjá henni Natalíu. Enginn alvarlegur skandall gerður þar nema að ég hélt áfram að sökka í SingStar. Held að þessi leikur sé persónuleg árás á mig og ekkert annað! Ég náði samt að komast upp í "Amateur" í þetta skiptið...hehe... Svo enduðum við Óli á Hressó og fórum ekki þaðan fyrr en 8 eða 9, man ekki nákvæmlega kl. hvað það lokaði þar. Erla litla turtildúfan mín var þá farin að lúlla.
Og þeir sem hafa ekki enn tekið eftir því að þá er ég komið með nýtt look á síðuna mína, var kominn með frekar mikið leið á hina lookinu en gamla síðan er þó enn í gangi. Hægt að skoða hana með því að smella hér. Ég var heldur ekki að nenna að vera uppfæra svona marga hluti (eins og kmikmyndir, tónlist, barinn o.fl.) og ákvað því að einfalda þetta og vera bara með blogg í bili, þó aldrei að vita hvort maður bætir einhverju við síðar... Svo drap ég gestabókina mína, hún var hvort í er orðin troðfull af einhverjum ógeðslega pirrandi pop-up auglýsingum og lét comment kerfi á í staðinn....haaa? hva segiði? hafiði eitthvað að segja?

< Til baka