Þá
er bloggið komið í gang aftur,
það var eitthvað smá vesen
í gangi en núna er þetta
allt að gera sig. Fór á föstudaginn
í enn aðra vísindaferðina
og var það Edda
miðlun sem splæsti bjór
á liðið í þetta
skiptið... man ekkert hvað kallinn var
að tuða en man að þeir buðu
upp á fínan bjór þannig
að ég er sáttur :) Eftir þessa
vísindalegu ferð þá
kíkti mar í eplasnafs til Steina
sagnfræðinema (a.k.a. Steini Bögg).
Það var allverulega hressandi djús
og gerði mann örlítið sturlaðan
þar sem að við Steini vorum eiginlega
á góðri leið með að
stúta
lítersflösku
af þessum djúsi á innan
við klukkutíma... ég kenni
enn þeim sopa um afleiðingar kvöldsins!
hehe :) Við fórum svo strákarnir
á Ölver
þar sem sagnfræðifólkið
var að slá í gegn í
karokí. Það er að segja
ÁÐUR en ég
og Steini stigum upp á svið! Við
tókum megahittarann Hit
me baby one more time... ætluðum
að taka Travis
útgáfuna en það var
ekki til þannig við tókum bara
Britney
gelluna, það er barað vona og
sjá hvort að sú gella fari
nokkuð í skaðabótamál
útaf söngnum okkar (ef kalla má
söng!) og nauðgun á lagi. Gæti
tapað tugum jafnvel hundruðum króna
í því máli! hehe.
Jépps, svo kíktum við á
Pravda,
Celtic og Saltbarinn og það var bara
heví stuð þar á ferð.
Svo
var greyið mamma að lenda í algjöru
rugli um daginn. Hún er að vinna
í Happdrætti
Háskólans og varð vitni
af þessu ráni
þar. Kom einhver rugludallur með byssu
og stal um 100þús.. sjæse
sko! Einhver ruglumbullugutti og wannabe wangsta-gangsta!
Ég
er enginn Silvíu
Nótt-fan en ég kíkti
á þessa forkeppni fyrir Eurovision
og verð ég barað segja að
ég vona að lagið
með henni verð sent út! :)
Mér fannst þetta svo fáránlegt
og kjánalegt að þetta bara
verður að komast alla leið... og
fyrir utan það þá voru
öll hin lögin í forkeppnina
(amk sem ég heyrði) hræðileg!
og þá meina ég að ekki
einu sinni heyrnalaus hamstur gæti sætt
sig við þá tónlist!
... reyndar held ég að meginþema
Eurovision
sé; að eyðileggja tónlist
eins og hún leggur sig og gera fólk
heyrnarlaust. Það er tilgáta
sem þarf varla rökstuðnings að
ég held :)