Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

Valentínusardagurinn o.fl.
18.02.06 .

Valentínusardagurinn var sl. þriðjudag (14. feb.). Ég stóðst ekki mátann að kaupa eina rauða rós handa elskunni minni og skrifa eitthvað sætt í kort handa henni. Fylgdi svo þessu ein lítil og sæt fingurbjörg, sem ætti nú að koma henni vel þar sem ég heyri ósjaldan „ÁTS!” úr stofunni þegar hún er að sauma eitthvað út fyrir húsó. :) Ég ákvað því að gefa henni þessa fingurbjörg áður en hún myndi nú misþyrma puttanum sínum jafn hræðilega og Bandaríkjamenn misþyrma fólki í Abu Ghraib eða Guantanamo. Kom ég þessum pólitíska áróðri mínum lúmskulega fyrir í þessum texta með þessari líkingu minni? ;) hehe.
Annars er nú komið allt á annan endan vegna teikninganna sem gerðar voru af Múhameð spámanni. Þessar teikningar höfðu nú þegar verið birtar nokkrum mánuðum fyrr í blaði sem gefið er út í Egyptalandi og fór það ekkert í múslimana, og sjálfir hafa þeir víst teiknað og birt myndir af kéddlinum. En mér sýnist nú bara múslimalöndin vera komin með nóg af vesturlöndum eins og þau þekkja þau (þ.e.a.s. í gegnum Bandaríkin og Ísrael) auk þess sem að öfgamenn þarna virka eins og bensín á eldinn. En vonum nú bara öll að lætin róist niður sem allra fyrst svo að samskipti vesturlanda og múslima versni ekki enn frekar.
Erlan mín er búin að vera eitthvað slöpp og missti röddina í einhvern tíma :/ en hennir líður nú eitthvað betur núna. Við (ég, Erla og tengdós) vorum í matarboði í Húsó í gærkvöldi ásamt foreldrum/gestum fleiri stelpna sem eru í skólanum. Rosalega góður matur, alveg mega djúsí hlaðborð og mmmmm... langar í meira :) Erla var líka að sýna okkur það sem hún og aðrar hafa verið að gera í Húsó; t.d. barnahúfu, trefil, barnateppi, rósaband o.fl. Hún verður bara saumandi og prjónandi allt í og á nýja heimilið okkar í framtíðinni :) Ég mun einungis ganga í prjónuðum ullarpeysum a la Erla eftir nokkur ár, þegar ég er kominn með gott safn af peysum frá henni :)

< Til baka