Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

Verkefnavika
23.02.06 .

Síðan seinasta mánudag og út þessa víku er verkefnavika hjá manni í sagnfræðinni. Það eru víst ekkert allar deildir með þessa "frí"víku en ætli þetta sé ekki útaf því að það er svo mikill lestur hjá okkur í sagnfræðinni að við fáum hér eina viku til að reynað gefa í ef maður hefur verið aðeins of latur við það hingað til. Ég er búinn að nýta þessa viku eitthvað í lestur en samt ekki næstum því eins mikið og ég ætlaði mér! :/ Er líka að reynað byrja á ritgerðum sem ég þarf að klára fyrir lok annarinnar. Ætla í einni ritgerðinni að fjalla um sögu hússins sem ég bý í, Hof (a.k,a. Sólvallagata 25), svo er ég að pæla að skrifa um íslenska Nasistaflokkinn í öðrum áfanga en á eftir að athuga hvort að kennarinn samþykki það efni.
Hef líka aðeins verið að nördast í fríinu mínu *nördínörd* með því að spila leikinn Final Fantasy VIII í PS2. Verð nú að segja að þessi leikur stenst allar mínar væntingar til þessa og meira til.. er reyndar ekki enn einu sinni búinn með disk 1, en leikurinn er á 4 diskum minnir mig. Er líka búinn að ganga það langt í nördaskapnum að manni er farið að langa í fleiri leiki og er maður þá sérstaklega spenntur fyrir Shadow of the Colossus (nýkominn út) og Dragon Quest VIII (kemur út bráðlega). So.. all you nerds out there.. beware! cuz Bjarki is back in town!¨hehehehe...djöfull er ég svalur! :)
Oooo svo er ég svooo ánægður! Því að ég var hjá tannsa um daginn og ég er ekki með neina skemmd! Liggaliggalái!! HAGHAHHAHAHA! Ég er svo heppí að ég gæti borðað broddgölt, þótt hann sé saltur og stingandi á bragðið! :)
Svo er komið að hinum vikulega flöskudegi á morgun. Í þetta skipti verður það vísó til Sjálfstæðisflokksins (eða eins og Jón Baldvin Hannibalsson myndi orða það; mexíkanska bófaflokkinn) :) og ætli maður skelli sér ekki bara á þá drykkjuveislu... eiginlega ekki hægt að segja nei við fríum bjór þegar maður er svona fátækur ;) hehe! Þannig að það má þá líta á það þannig að ég þurfi að farað djamma og drekka... til þess að spara peninga :) haha.. ok, smá blekkingarleikur við sjálfan mig hérna :P
Var að bæta við nýju myndaalbúmi á nýju síðuna mína, hægt að skoða myndirnar hér. (Ef þið viljið fá eiginhandaráritun á þær þá þurfið ÞIÐ að prenta myndirnar út og koma með þær... ég skrifa svo) ;) ok...þangað til næst... bæbæ!

< Til baka