Þá
er helgin búinn og mánudagurinn
kominn með gervibros á vör.
Mánudagur er yfir höfuð fíludagur
finnst mér, getur samt verið ágætur..
hehe. Helgin byrjaði með vísindarferð
til Sjálfstæðisflokksins
á föstudaginn kl 1700. Þar
var boðið upp á bjór,
rauðvín og hvítvín...
ég smakkaði allt! :) Til að spara
sem mestan pening þá djúsaði
mar sig vel upp á fría búsinu
fyrir bæinn og var rúta í
bæinn frá Valhöll. Bæjarferðin
byrjaði með stoppi á Purple Onion
þar sem Stebbi
fékk sér eitthvað að éta..
ég var eitthvað að reynað
tala við afgreiðslumannin, þar
sem var múslimi, um teiknimyndirnar af
Múhameð en ég var víst
ekkert að koma enskunni neitt voðalega
vel út úr mér... ætti
að halda mig við íslenskuna þegar
ég er í glasi :) Fórum
svo á Celtic Cross um 19 eða 20 leitið
og þar var meirihluti sagnfræðinganna
sem mættu í vísó.
Ég var plataður til þess að
kaupa staup sem kallast B52...
mjög gott staup... en rólegur á
því að kosta 1000 kr herra
staup! Ekki alveg þess virði þó
hann hafi verið góður og frekar
flókið fyrir fullan mann að drekka
hann í fyrsta skiptið :) Erla,
sæta gellan mín, joinaði okkur
nördunum svo á Celtic seinna um
kvöldið. Fólkið kíkti
svo örstutt á Gaukinn
þar sem ég og Steini vorum víst
með einhverja flengingaráráttu...förum
ekkert nánar út í það
hér! :D Ég, Erla
og Stefán
tókum smá rölt yfir á
Dillon, svo langt síðan mar fór
þangað síðast að ég
bara þurfti að kíkja. Erla
var líka að heilsa upp á vinkonu
sína úr Húsó
þar. Staðurinn var enn spilandi gæðatónlist
eins og manni rámaði í. :)
Erla fór heim eitthvað rétt
yfir 3 og flestir sagnfræðinganna
líka. Ég er eins og ég
er ákvað að fara aftur í
bæinn eftir að hafa fylgt Erlu
heim til að heilsa betur upp á hana
Evu perra :) Fór aftur á Celtic
og hitti hana þar. Svo í lok kvöldsins
þegar að það var búið
að loka Celtic ákvað hún
að taka eitthvað geirvörtuflipp
á strákunum þarna! :) hahah!
það var baaaaaaara fyndið! :)
Eva perri mar! ;) Stefán
var svo mikill snillingur að taka nokkrar
myndir af vísóferðinni, hægt
að skoða þær hér.
Laugardagurinn
var meeeeeeeeeeega chill... bara með Erlu
beib í annari, kaffi í hinni og
glápa á tv og lesa til skiptis...þynnkan
var slæm....úff let me tell you....Erla
og mamma hennar bökuðu svo nokkrar
bollur og ég og Erla létum á
þær...æ lof bollur...jeeeee
Á
sunnudag fórum við Erla ásamt
foreldrum hennar í brunch í Mosó.
Rosalega gott allt saman sem við fengið
hjá þeim, fengum m.a. bollur! :)
nmmmmm,... æ looooooof bollur! æ
vill meik lof tú ðem dei efter dei!
aaaahhh! ;) hehehe. Svo seinna um daginn kíktum
við á bókamarkaðinn í
Perlunni...djöfull er ég feitur
og sveittur nörri mar! ég var að
missa mig þar! Þurfti að hemja
mig alveg gífurlega mig langaði að
kaupa svo margar bækur þarna! hehehe
*nördínördí*. Þetta
endaði með því að ég
keypti mér tvær bækur: Fremsta
víglína - Átök og
hernaðarumsvif á Austurlandi í
heimstyrjöldinni síðari
og Vígdrekar og vopnagnýr
- Hvalfjörður og hlutur Íslands
í orrustunni um Atlantshafið.
Keypti báðar bækurnar á
ekki nema 3000 kr! :) Fór svo í
Kringluna
með Erlu
þar sem hún keyptir sér
voða flott föt og læti.
Var
að kíkja á bloggsíðuna
hennar Brynju,
þar er hún með tengil á
síðu þar sem mar getur komist
að því hvaða lag var vinsælast
á deginum sem mar fæddist á...
mitt lag er "Don't
You Want Me" með The
Human League. Verð nú að
segja að ég er ekkert voðalega
sáttur við lagið mitt... langaði
í eikkað meira kúl sko :P
hehe... en ef þið viljið tjékka
á hvaða lag var vinsælast þegar
að þið fæddust þá
er síðan hér.
Endilega kommentið og segið hvaða
lag var á þínum degi :)