Það
var alveg hörkustuð hjá drengnum
um helgina. Á föstudaginn missti
mar reyndar af árshátíð
sagnfræðinema
og hugvísindadeildar.
Miðinn var á frekar háu prísi
miðað við að mér fannst
eiginlega ekki koma til greina að fara nemað
taka beibið mitt með mér (aka
Erlu), þá hefði fjörið
kostað um 8.000 kéddl (fyrir utan
áfengi)... þannig mar lét
þetta bara fram hjá sér
fara. Samt búinn að heyra að
þetta hafi víst verið alveg
heví gaman.
Aftur
á móti á lördag þá
fór kallinn aðeins að vera með
læti :) Inga
Dís kíkti til Rvk
um
helgina og mar hafði ekki hitt hana svo
rosa lengi að það kom bara ekkert
annað til greina en að heilsa upp á
sveitastúlkuna. Kíkti á
kaffihús með henni og Óla
þar sem var spjallað og ákveðið
að nýta kvöldið í
eitthvað vilt og tryllt ;) Ég, Erla,
Óli, Inga
D vorum að djúsast @ Bjarki's
pleis og svo joinaði Andrea okkur sem mar
hafði btw heldur ekki hitt síðan
mar var í bleyju liggur við! :) Hrefna,
vinkona Erlu úr Húsó,
joinaði okkur líka og var bara hörku
fjör hérna. Fórum svo í
bæinn eitthvað eftir miðnætti
og var haldið fyrst á Hressó,
þar toppaði Inga
Dís kvöldið með því
að gleyma skilríkjunum sínum
þannig hún komst ekki þangað
inn. Þannig það var farið
á Celtic og 11 sem var nú ekkert
verra. Ég tók mína mega
danstakta...þið misstuð að
miklu sem misstuð af Bjarka dansa sko! :)
Tók vélmennadansinn fyrir the
fans ;) hehe! :) Í lokin var það
bara ég og Óli sem vorum eftir
á djamminu og kíktum með 5ba
á Hressó...
og leyfist mér að fullyrða það...
að Óli ætti að gerast danskennari.
Ég hef sjaldann séð eins brjálaðann
dans eins og þessi gutti kenndi manni!
:D haha! Tsss......en svo var bara haldið
heim og upp í bólið um 7-8
leitið.
Sunnudagurinn
fór í lestur, chill og dvd. Leigði
mér Spongebob
Squarepants og The
Escape from Alcatraz. Ég vissi ekkert
við hverju átti að búast
með Spongebob vegna þess að ég
hafði aldrei séð þessa
þætti.... verð nú samt
barað viðurkenna að ég skemmti
mér alveg stórkostlega yfir myndinni!
:D Algjör sýra og vitleysa... ekta
fyrir Bjarka sko :) Escape from Alcatraz var
frekar slöpp. Ágæt mynd........eða
bara ekki! :P
Í
lokinn verð ég að koma nokkrum
lögum á framfæri sem var hlustað
oft á á laugardaginn og mæli
algjörlega með þessu fyrir djammið
:)