Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

Lesa, lesa, lesa, lesa og... lesa!
14.03.06 .

Á föstudaginn var farið í vísó ferð til Landsbankans og var það alveg hörku fjör. Voru þarna einhverjar fleiri deildir fyrir utan sagnfræðideildina þannig að það var mikið af fólki og var boðið upp á glæsilegar veitingar og að sjálfsögðu gott að drekka með því :) Svo var kíkt á Pravda þar sem einhverjir trúbadorar gáfu okkur samanlagt 10 bjóra fyrir að hvetja þá! :) Ekki slæmt það! Kíktum svo á Dillon þar sem tónlistin var að brillera og við Erla fórum svona frekar snemma heim, 02 eða eitthvað .. og róleg á snjókomunni!!! Það snjóaði eins og himininn væri búinn að halda í sér í nokkra mánuði og svo bara..aaaaaaaaaaaaahhhhhhhhhhhh, lét allt saman gossa niður! Hélt að snjór væri bannaður á Íslandi eftir 5 mars??... Anyways! ... Hægt að skoða myndir frá kvöldinu hér (í boði Stefáns!) :)
Annars fór helgin aðalega í lestur. Er búinn að gera fátt annað en að lesa lesa og aftur lesa síðan um helgina. Enda nóg að lesa í sagnfræðinni! Núna er maður líka að farað byrja á ritgerðum og svona. Kíktum þó á laugardaginn á einhverja Brúðkaupssýningu í Blómaval og svo bara heim að lesa og læra meira.
Í gær fór ég á fyrirlestur í H.Í sem bar titilinn: Hvað er Bandaríkjastjórn að vilja í Miðausturlöndum?. Það var Dr. Micheal Rubin sem hélt fyrirlesturinn fyrir troðfullum sal. Fyrstu 20 min. hélt hann fyrirlestur um efnið og voru svo 40 min. sem voru teknar í spurningar. Þar fékk kallinn heldur óþæginlegar og óblíðar spurningar en í rauninni hafðir maður heyrt allt þetta áður sem að Dr. Rubin var að segja þarna í þessum fyrirlestri. Reynir m.a. að réttlæta stríðið í Írak, hvenar nauðsynlegt sé að heyja stríð á önnur lönd o.s.frv. Hægt er að nálgast stuttar greinar um þenna fyrirlestur hér fyrir neðan:

Mbl.is: Hörð gagnrýni sett fram á fundi um stefnu Bandaríkjanna
Mbl.is: Erlendur fyrirlesari kærður til lögreglu vegna Íraksstríðsins
Ruv.is: Dr. Micheal Rubin kærður
Fridur.is: Dr. Micheal Rubin, gestur Háskóla Íslands, ákærður fyrir undirbúning árásarstríðs
NFS: Fyrirlestri mótmælt
Sjónvarpið, fréttir 19:00: Nokkrir Íslendingar kæra bandarískan fræðimann (myndskeið)
VefTV, NFS fréttir 18:30: Fyrirlestri mótmælt (myndskeið)

Sussumsveijattan! Á meðan ég var að tjékka á þessum greinum um fyrirlesturinn á Mbl.is sá ég þessa grein um Nistelrooy! Ég er að segja það, þessi kauði má ekki yfirgefa Man. Utd. Allavegana ekki strax. Chelsea sennilega búnir að negla sér í Ballack og við þurfum bara á Hollendingnum Nistelrooy að halda til að berja þetta þýska tuskudýr til! Og ætli Eiður Smári verði þá seldur frá Chelsea? eða látinn sitja á varamannbekknum?...það er pæling. Annars hefur maður nú séð fáa leiki í lengri tíma. Eftir að það var gerð sér stöð með enska boltanum þá hefur maður einstaka sinnum kíkt á kaffihús til að tjékka á einum og einum leik, en bara ekki séns að mar kaupi þessa stöð, allavegana ekki eins og málin liggja í dag.
Var að tjékka á einhverri síðu hvaða dýr ég hefði verið í fyrra lífi...

You Were a Rabbit
You are fast thinking and tend to live by your wits.
Getting over fears is important to you, as is strengthening intuition.

< Til baka