Mar
er núna kominn með fyrsta stigs stresserí
fyrir ritgerðir sem þarf að skila
og lokaprófum í sagnfræði.
Þetta fer vonandi allt saman vel en samt
er maður með einhvern stressfíling
þarna í maganum. Kannski maður
fari að hækka fjölda kaffibolla
fyrir hvern dag og lengja daginn um nokkra klukkutíma
svo maður sé ekki á síðasta
séns með allt. Það er nú
einu sinni bara ca. 2-3 vikur eftir af skólanum,
svo páskafrí og þar á
eftir lokaprófin. Held að kaffið
taki við bjórnum í bili :)
Annars
var helgin alveg brillíant! Föstudagurinn
var bara föstudagur og nenni ekkert að
blaðra um hann neitt :) En laugardagurinn
var algjör snilld. Erla
fór með Húsógellunum
út að borða og í leikhús.
Eftir það komu allar gellurnar hingað
í partý. Foreldrar hennar Erlu
leyfðu henni að hertaka hæðina
fyrir ofan okkur þannig að partýið
var haldið þar og var alveg hörkustemmari
í gangi. Eftir einhvern tíma var
ég samt orðinn svolítið
einmanna þar sem ég var eini gaurinn
á svæðinu og þá
kom Danni
frændi í súbermann búningi
og bjargaði deginum :) (btw, búningurinn
fór þér rosalega vel!) hahahahehehhohoho.
Ég þurfti að sjálfsögðu
að skora á hann í Soul
Calibur III... og.. ég vil helst
ekkert tala meira um það... fjandans
áfengið sko ;) hehe... Svo fórum
við í bæinn og allir orðnir
haugafullir. Fórum á Cultura,
Grand
Rokk, Ellefnuna og enduðum svo á
Hressó.
Þar var dansað eins og ósnýttur
kenýahamstur í uppbrettum buxum!
Mikið fjör, mikið gaman! :)
Það
er eiginlega fátt annað að tala
um en þessar djammstundir þar sem
mar er eiginlega bara sokkin ofan í bækurnar
og valla hægt að tala um eitthvað
svoleiðis hér, þá myndu
allir hætta að lesa þessi stórmerkulegu
blogg mín :)
Ef þið
eruð að pæla í að kaupa
ykkur nýja sturtu eða nýtt
baðker (þá meina ég
alvuru skít, engan sora!) þá
mæli ég endilega með að
þið tjékkið á þessu
hérna og látið í
ykkur heyra ef þið hafið áhuga.