Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

Má ég kannski fá sumar?
30.03.06 .

Mig er farið að langa í sumar og sól! Kominn með ógeð af þessu endalausa gluggaveðri, búið að vera svo fjandi kallt að rasskinnarnar mínar eru frosnar saman! Annars held ég að þetta verði bara hið fínasta sumar (þ.e.a.s. ef að frostið hættir að bögga mig svona rosalega!), ég verð að vinna aftur í Vesturbæjarlauginni sem baðvörður, vúhú! :) hehe. Svo verður maður að vera duglegur að lesa fyrir Mannkynssögu I áfangan í þar sem ég er að fara í upptökupróf í ágúst í þeim áfanga. Og síðan en ekki síst þá flytjum við Erla í íbúðina okkar á Dunhaganum :) *hlakki-svo-mikið-til-að-ég-prumpa-í-sjálfan-mig*...það verður baaaara geðveikt! Já svo er Fasteignasjónvarpið að farað koma hingað eftir smá stund að mynd húsið, þannig að húsið fær sínar 15 mín af frægð í TV, nú hætta allir að horfa á þennan Gillzenegger-sora og farað glápa á fasteignaþátt í staðinn ;)
Svo átti pabbi hennar Erlu afmæli í fyrradag, fengum alveg rosalega góðar kökur og kaffi.. mmm, og það var sko nóg af afgöngum :) nammilammilái!
Sl. laugardag fórum við Erla í giftingu hjá frænku hennar, það var alveg mega flott athöfn og alveg bjálæðislega góður matur. Brúðkaupstertan var ísterta með marsípani yfir, like.. NAMM, heavy gúdd sjæse! Svo eftir matinn, nokkuð mörg rauðvínsglös og nokkra bjóra fórum við Erla aðeins í bæinn og hittum þar vinkonu hennar úr Húsó á Ellefunni og það var sko dans-stemmari þar á ferð :)
Svo er ég LOKSINS búinn með þessa blessuðu ritgerð mína um Vestur-Íslendingana, búið að taka mann dágóðan tíma, Erla (ritstjórinn minn) á bara eftir að lesa yfir þetta og setja sinn gæðastimpil áður en mar skilar. Þá er barað byrja á næstu ritgerð sem verður um sögu Hofs, a.k.a. Sólvallagötu 25... en þetta er nú nóg í bili

Adios Amigos!


How Will I Die Quiz

How Will I Die Quiz

You will die at the age of 97

You will die of sunburn trying to beat the world record for nude sunbathing

Find out how you will die at Quizopolis.com

Quizopolis

< Til baka