Þá
er pjakkurinn kominn í páskafrí!
Ég skilaði báðum ritgerðunum
mínum (um Vestur-Íslendingana
og Hof) á föstudaginn, kíkti
svo á Kaffi Viktor með Óla
og skellti mér svo í partý
með sagnfræðinemunum um kvöldið,
það var alveg helvítið
fínt og hressandi! Maginn minn fór
í feitasta fokk, blandaði saman screwdriver,
wiskey, bjór og rauðvíni þetta
kvöldið og maginn minn var ekki að
fíla þá blöndu...tsss!
... fékk mér svo Hlölla (takk
Stebbi!) og hann fixaði mann alveg þannig
mar var hress fram til morguns.
Í
gær fór mar svo í fermingarveislu,
kökur og fínterí. Kíktum
svo smá í Mosó eftir veisluna
þar sem að Kata var að hjálpa
Erlu að lita á sér hárið,
liturinn varð sem ekkert eins og var sýnt
á kassanum, en mér finns hann
nú samt bara mjög fínn (held
að Erla sé ekki sammála mér
þar) ;)
Í
dag var mar bara svo að taka til og slappa
af og lesa með tærnar uppí
loftið, þykjustunni-kokteil og ...mmm...
mar ætti kannski að hengja upp hengirúm
hérna í stofunni til að geta
notið gluggaveðursins betur... pæling
sko
Djöfull
er mar sáttur að Man Utd hafi unnið
Arsenal 2-0! Man Utd hefðu meira að
segja átt að fá eitt víti
þegar að einhver Arsenal dúddi
varði boltann með höndunum! (og
þá er ég ekki að tala
um markmanninn þeirra) en dómarinn
hefur verið á túr eða
eitthvað og neitaði að splæsa
á víti (BASTARÐUR!)