Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

Gleðilega páska!
16.04.06 .

Mar er búnað verað fíla sig í klessu þessa helgina. Við Erla kíktum í heimsókn til Gumma og Sabinu á fimmtudaginn sem var mjög gaman. Þau voru búnað kaupa sér nýja Buzz leikinn og mar var alveg að fíla hann í klessu, ég reyndar vann aldrei! heheheheh... bara re-match sumday!
Á föstudaginn (þann langa) fórum við Erla í mat til mömmu og pabba og fengum rosalega góðan fisk hjá þeim. Seinna um kvöldið fórum við aðeins að partýast hér heima; ég, Erla, Kata systir og co., Danni frændi og Eva Hlín (megaperri!) ;) og vinkona hennar komu. Það var alveg heví fjör hér barasta, skondið þegar það var pantað pizzu hérna um kvöldið og svo átti enginn fyrir henni! hahahahaa! pizzasendillinn var mjög-ekki-kátur! ... en þetta reddaðist svo með einhverju rugli (eftir 20 min eða eikkað!) .. fórum svo í bæinn um 4 eða eitthvað og bara fannst vera lítill stemmari þar á ferð þannig að mar fór bara fljótlega heim að lúlla.
Í gær vorum við Erla barað hjálpa mömmu og pabba að pússa hurðir. Þau eru að taka þær allar í gegn og gékk það bara ágætlega, fengum svo pizzu um kvöldið sem bjargaði alveg þynnkunni sko :)
Í dag er svo planið að fara í páskamat til mömmu og pabba í Mosó. Við Erla ætluðum að vera í mat hér uppi (hjá tengdó) en það kom svolítið upp á. Það kom upp eldur í eldhúsinu!! Rafmagnstaflan bræddi úr sér og eikkað heavý og logaði frá gólfi og upp að loftinu í eldhúsinu! Sem betur fer var Jónas snöggur að slökkva eldinn, en þetta hefði nú getað endað illa! Össs! :(
Svo segi ég bara...

Gleðilega páska!

< Til baka