Sjaldan
hefur verið jafn lítið að
frétta af mér eins og þessa
dagana, enda fara þeir allir í
að lesa undir próf. Ég lenti
í einhverju helvítis tölvuveseni
um daginn, málið var að annar
harði diskurinn minn bara "hvarf"
og komst ég ekkert í nýklárað
verkefni fyrir sagnfræðina sem var
einmitt á þeim disk.. þannig
að ég gerði allt verkefnið
upp á nýtt... en svo kom pabbi
töfrakall og lagaði þetta allt
:) Þannig að ég gerði þetta
helvítist verkefni tvisvar sinnum! *óskiljanlegt-blót*
aaafjandannskítabrussutannakéddlingarruglið!
Var
samt að skoða harða diskinn aðeins
betur og fann á honum eeeeeldgamalt verkefni
sem ég gerði í FÁ,
þegar ég var í upplýsinga-
og fjölmiðlafræði þar.
Djízzz mar! Djöss sýra! Verkefnið
átti að vera "stuttmynd"
og átti að nota ImageReady í
það... eins og með svo margt annað
þá ætlaði ég að
klára þetta kvöldið fyrir
skiladaginn en þetta tók mig aðeins
lengri tíma en ég bjóst
við... þannig að þegar ég
átti að talsetja þessa "stuttmynd"
þá var Erla sofnuð og var í,
sama herbergi og ég var að vinna
í þannig að talsetningin er
alveg HRÆÐILEG! (vegna
þess að mar var að reynað
hafa eins lágt og mar gat). Þið
getið séð þessa "stuttmynd"
með því að smella á
myndina hér til vinstri (4,8mb) og sést
þar einnig titill myndarinnar...hehehe...
mér finnst þetta svona vera á
mörkum þess að vera fyndið
og sorglegt og stundum bara bæði í
einu eða hvorugt...en dæmið fyrir
ykkur sjálf :) Endilega kommentið
um þessa sýru hér fyrir
neðan :)