Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

Prófin að byrja
02.05.06 .

Þá er komið að þessu, fyrsta prófið hjá mér er á fimmtudaginn! Það er nettur stressfílingur í gangi en þetta tekst allt vonandi. Sjúklega fúlt samt að horfa út um gluggann á þetta yndislega veður og vera bara fasstur inn í bókalestrinum, en það verður bara gert meira af því að njóða þess þegar mar er búinn í prófunum þann 13. maí! Þá verður sko fjör á kallinum!!!! :)
Skrapp á sýningu á laugardaginn á vegum ISIR og var pabbi kallin með kynningarbás þar fyrir fyrirtækið sitt; IT Consultancy and Software Design. Sýningin heppnaði bara mjög vel og var slatti af fólki sem tjékkaði básinn hans pops. Kvöldið áður skrapp mar aðeins út á lífið en Erla beibí var þá að halda eitthvað partý hérna í kjallaranum fyrir Húsógellurnar og náði kjallarinn að fyllast út að dyrum, ég smitaðist auðvitað af djamm-veirunni það kvöldið og bara heví stuð þar á ferð.
Á sunnudaginn var bara verið að lesa fyrir prófin en kíkti með Erlu á Draumakaffi í Mosó þar sem amma og fleiri ættingjar komu saman til þess að minnast afa, en hann hefði orðið 75 ára þá.
Svo er það bara planið að; lesa, lesa, lesa oooooooog lesa! þannig ég ætla ekkert að blogga hérna í bili nema ég fái blogg-fráhvarfseinkenni, því að það verður örugglega lítið sem ekkert að frétta af mér fyrr en eftir 13. maí! :) Ég lét svona "til sölu" tengil hægra megin á forsíðunni og ætlað skella dóti þar inn sem mar er að selja... það er nebbla núna minna en mánuður í það að mar flytji í Dunhagann :) weeee!!! ...og mar erað finna svona einn og einn hlut þegar mar er að pakka sem mar vill selja eða bara henda, þannig að látið mig vita ef þið sjáið eitthvað sem þið girnist :) Annars segi ég bara góða nótt! góðan dag og halelúja po den hamster! ....btw, hafiði ekkert meira að segja um myndbandið sem var í síðasta bloggi? ....slappir hamstrar hér á ferð?... kannski hamstrar með pönnuköku á hausnum? ;)

p.s. bendi á grein eftir pabba um mynsturgreiningu á gervitauganetum sem birtist í tímariti ISIR (bls. 9-11), hægt að nálgast blaðið hér.

< Til baka