Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

Próflok!
15.05.06 .

Er búinn í prófunum! wúhú! :) Gekk bara ágætlega í þeim...að ég held *kross-mæ-fingörs* Það var alveg heví gott veður eftir prófið þannig mar kíkti til Óla í bjór og fótbolta. Mar var kannski aaaaaðeins að missa sig í fótboltaleiknum hans (FIFA06). Ég var nebbla aldrei búnað ná að skora á móti honum og svo loksins náði ég því og...já....segjum bara að það er strútur í Afríku sem hefur misst heyrnina! En já svo um kvöldið kíkti Birgir á okkur, við vorum ekki búnað hitta hann ég veit ekki í hvað mörg ár, þannig það var algjör snilld :) Svo fórum við í bæinn og kíktum við hjá Sólu og hittum þar Gumma og Sabinu og Erla krútta mín kom líka, var orðinn ponku mikið full litla dúllan :) .....og já... ég náði að kveikja í toppnum á mér þar...og smá í augnhárunum og augnbrúnunum... sem BETUR FER sést það ekki, hahaah :) Svo kíkti mar á böns af stöðum, en fyrr um kvöldið fórum við Óli og Birgir á Vegamót og lentum í einhverju heví gæsapartýi...erum að tala um 10-15 blindfullar breskar gellur, djöfull var það fyndið :) Þær voru að splæsa hvítvini á liðið og ég veit ekki hvað og hvað, ég var að reynað fá Birgir til að strippa upp á borðinu fyrir þær en það var ekki að virka ;) hahaha! En já...því miður voru þær með myndavél með sér, og ég var að láta eins og trylltur/ofvirkur víkinganaggrís....hehehe :P Svo þegar mar kom heim fékk mar að hvíla sig vel og lengi...orðinn dauðþreyttur eftir allan próflesturinn og svaf til 18!!!! hef ekki sofið svona lengi síðan á Eyðum '64! ;)
Var svo að láta HM tengil á byrjunarsíðuna hjá mér, þar er hægt að skoða riðlana og hvenar leikirnir eru...getur reyndar verið að tíminn á leikjunum sé rangur hjá mér, en ég laga það þá bara seinna.... ég segi svo bara: ÁFRAM HOLLAND! :)

< Til baka