Þá
er mar loksins kominn með netið! Komnar
heilar 8-9 vikur síðan mar pantaði
þetta hjá Hive, held án
efa að þeir hafi slegið heimsmet
í asnalegri og lélegri þjónustu!
(Ég allavegana hringdi í Guniess
Book of Records og þeir sögðu
að þeir ætluðu að líta
á málið). Það er
svo langt síðan að mar hefur
eikkað bloggað ég ætla
barað koma með nokkra punkta um eikkað
fríkí sem ég man eftir
að hafa gert síðan síðast....eruði
ekk spennt???? ;)
* Ég átti afmæli 10 júlí
og fékk helling af töff sjitti,
m.a. skó, sagnfræðirit, 12
ára gamalt viskí og langþráða
steina til þess að kæla viskíið.
*
Ég fór ekkert um Versló,
var að vinna á laugardag og kíkti
þá til Danna frænda í
vilt afmælispartý.
*
Ég og Danni lékum skrímsli
fyrir myndina Astrópíu (held að
hún heiti það).
*
Ég helt staffapartý um daginn,
endaði með því að allir
beiluðu og dró þá Óla
með mér á eitt stk óld
skúl fyllerí. Skál!
*
Ég er að fara í próf
í mannkynssögu 24. ágúst.
*
Mar er búnað koma sér vel
fyrir í nýju íbúðinni.
*
Við Erla keyptum okkur 27" LCD sjónvarp,
sem ég ELSKA!
*
Kíkti í partý til Sólu
*
Keypti mér laser í Kolaportinu,
yndislegt að leika við Snötu með
því! :)
*
Er búnað verað spila Dragon Quest
í PS2.
*
Ziggi Zen Zeiní er heitasti rapparinn
í Mosó.
*
Fór á Pirates of the Carribian,
hún var bara drullugóð.
*
Pabbi er að farað bjóða upp
á góða og ódýra
hýsingu (www.veraldarvefurinn.com).
*
Ég er með æði fyrir Jolene
laginu með White Stripes.
*
Erla er að farað byrja í HÍ
og ætlar að læra enskuna.
*
Er að farað gerast áskrifandi
af enska boltanum.
*
Það heitasta í dag (að
mati Cosmo!!!): bíómyndin Army
of the Bread, sjáið treilerinn hér,
hehehehehehehe :)
Ok,
man ekki eftir fleiru, mar er að búa
til pláss í heilabúinu
fyrir sagnfræðilesturinn. Þangað
til næst..... gútsígútsí!