Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

Ofurnördinn Bjarki [frigus nerdus capito Bjarki]
25.08.06 .

25. ágúst bara kominn? hvað er að gerast?? Sumarið að vera búið án þess að byrja eitthverntíman!...uuu...það sööökkar! Allavegana þá var í prófi í mannkynssögu I í dag (ca 3500 f.Kr til 1475 e.Kr.) og verð að segja að mér gekk nú ekki eins vel og ég vonaðist til. Ég hef verið að rembast við að lesa námsefnið og mar hélt að mar væri með helstu atriðin á hreinu, en þá þarf ég einmitt að beila á einni spurningu sem gildir 25% :S Segi nú ekki að ég gat ekki svarað henni... en gat bara ekki komið miklu út úr mér. Get nú lítið annað gert en að vona mitt besta.
En allavegna þá var mar að tjékka á GeimTíví áðan og mar fékk svona nettann nördafíling í sig. Fór að skoða væntanlega PS2 leiki og væri vel þess virði að tjékka á þessum leikjum (reyndar ekki búið að dæma þá ennþá, en virka samt spennandi). Hægt er að smella á nafn leikjarins til að lesa aðeins um hann og skoða myndir o.fl..

ATV Offroad Fury 4 [kappakstursleikur]

Cartoon Network Racing [kappakstursleikur]

Final Fantasy XII [rpg]

God Hand [hasarleikur]

God of War II [ævintýra, fantasíu og hasarleikur]

History Channel: Civil War [herkænska]

Mortal Kombat: Armageddon [bardagaleikur]

Valkyrie Profile 2: Silmeria [rpg]

Yakuza [ævintýra og hasarleikur]

Svo fannst mér svoldið sniðugt sem ég heyrði í GeimTíví, að Lucas Art væri að pæla í að gefa út nýjan Star Wars leik fyrir Nintendo Wii, og þá myndi mar nota aðra fjarstýringuna til þess að halda og stjórna geislasverðinu....pretty svalt það.

< Til baka