Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

„Springtime for Hitler and Germany!”
03.09.06 .

Guten tag dömur, herrar og aðrar verur. Það er bara allt gott að frétta af kéddlinum þessa dagana. Var að klára mína seinustu vakt í vinnunni í gær! :) Skólinn byrjar svo bara strax á morgun, mar á eftir að kaupa allar bækurnar... mun leggja af stað í það ævintýri á morgun, held að þetta sé dæmi upp á ca. 25.000 kr.
Við Erla leigðum okkur tvær myndir í gær; The Producers og The Cave. The Producers kom mér verulega á óvart...því að þessi mynd er sett upp líkt og söngleikrit, (já! ég veit! hljómar illa!). Ég er ekki mikill söngleikja-aðdáandi, en þessi mynd er algjör undantekning. Karakterarnir í myndinni eru alveg rosalegir, sérstaklega gaurinn sem Will Ferrel leikur, hann leikur einhvern brjálaðann neo-nasista sem býr á húsþaki með hópi af dúfum! :) haha! Mæli alveg með þessari mynd :) Aftur á móti er The Cave alveg teeeeríblöööhhh! ég gafst upp á henni eftir 40 min eða eikkað álíka...þvílíkt djönk! (og já btw, meðan ég man, þá er ég ekki orðinn neinn neo-nasisti, fyrirsögnin á blogginu mínu er tekin úr The Producers! ;) )
Svo á Erla mín afmæli 6. sept., mar þarf að farað finna eikkura djúsí uppskrift af köku til að baka handa krúttinu mínu :)
...þangað til næst......gútsí gútsí!

< Til baka