Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

Kreisíbrein
16.09.06 .

Bléééééssuð! Hvað segir fólkið? Ég er svo sjúklega hress að það er bara ekki eðlilegt! Ég fékk nebbla að vita af sumaprófinu sem ég var að taka í faginu; Mannkynssaga I, og viti menn! ég áí áfanganum með einkunina 7! vúhúh! :D Þannig að mar er sjúklega sáttur við lífið í dag! Annars er mar bara búnað verað skólast eins og kreisí. Kíkti á sýninguna 871 +/-2 sem er á Aðalstræti fyrir tímann "Íslandssaga fyrir 1815" og verð að segja að mér þykir þetta alveg afskaplega vel heppnuð sýning... stutt... en töff :)
Erla átti svo afmæli um daginn, ég gaf henni sona gellu Fossel úr, voða töff, og ilmvatn og Emilíönu Torrini geisladiskinn (omg, gellan syngur svo vel!).
Svo er mar búnað vera duglegur að kíkja reglulega á Dillon með sagnfræðingunum. Dillon er staðurinn fyrir sagnfræðingana þessa dagana, tekinn við af Pravda (og er ég því feginn!).
Ég var að uppfæra snilld og gellu mánaðarins. Mér fannst Magni eiga skilið að vera skráður sem snilld mánaðarins þar sem hann gaf manni fína afsökun til að vaka frameftir á virkum dögum! :) og gellan að þessu sinni er Kate úr Kates Playground, og er fyrsta gellan hjá mér til að vera 18+! Tjéddlinn bara orðinn grófur hér? Á mar að sensora þetta fyrir ykkur krakkar? ;) hahehhehehahaha!
Mar ætlar að koma sér í háttinn, góða nótt og gútsí gútsí! - Adjö!

Ps, ekki þæginlegt að glápa á þessa mynd? :D hehgóh´hoóhhahaaa!

< Til baka