Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

Mix in a bag
26.09.06 .

Djöfull er ég ógeðslega töff nörd! haha! Ég var að gera svona MySpace síðu: www.myspace.com/rassakaktus . hehehe. Ég hafði bara akkurat ekkert að gera og var aaaaðeins að drepa tíma :) Held að það séu nú ekki margir með MySpace sem ég þekki, þannig ég veit satt best að segja ekki alveg af hverju ég var að gera þetta... kannski hefur þetta einhvern æðri tilgang? Kaktusar lifa auðvita við mikinn plöntuhatur... t.d. er alltaf sagt: "HEY! ÞÚ ERT MEÐ KAKTUS Á RASSINUM!?" en ekki sagt við kaktusinn: "heyrðu, afsakið herra kaktus, ég samhryggist... en þú ert með rass á þér". Alltaf kennt kaktusinum um!??! ...pælum aðeins í þessu krakkar... mínútu þögn til heiðurs allra kaktusa.. amen.
H
ehe, já, allavegana þá var ég líka að skella tvem ritgerðum sem ég skilaði inn síðustu önn. Titlarnir á þeim eru; Vesturfarar - var einhvern meginorsök fyrir Vesturferðum Íslendinga? og Hof 1906-2006 - Hof, Ás og fjórir íbúar húsanna. Hægt að skoða ritgerðirnar á Háskólasíðunni minni eða með því að smella hér.
M
ar var svo að skoða gamlar síður í favorites og rakst á síðuna þar sem lög eru tekin og spiluð aftur á bak til þess að finna svona "hidden messages", hehe, sama hve mikið eða lítið er til í þessu, þá getur verið doldið gaman að hlusta á þennan skít. Smelltu hér til að tjékka á síðunni.
E
n jáhm! ég er farinn að lesa aftur! hej då!

p.s. ætlar enginn að ræna dýnamíti eða öðru sprengiefni frá yfirgefna varnarliðssvæðinu og sprengja upp Kárahjúkavirkjun!?... ég mana þig! Skal gefa þér 500 kéddl í staðinn! ;) heh

< Til baka