Blogg

Ég

Fólk

Myndir

Contact

Tenglar

Treilerar o.fl.
01.10.06 .

Sælt veri fólkið. Þá er kominn nýr mánuður og mar er búinn að setja inn nýja snilld og gellu mánaðarins. Snilldin að þessu sinni er vefsíðan Veraldarvefurinn þar sem boðið er upp á mjög ódýra og góða hýsingarþjónustu. Mæli með því að þið tjékkið á vefnum ef þið eruð eitthvað að pæla í þessum málum. Svo er líka fleira á síðunni; fréttir, skoðanakannanir o.fl.
M
ar tjékkaði inn á Dillon á flöskudaginn með sagnfræðingunum. Var einhver auka-aðalfundur Fróða (nemendafélagsins) og boðið upp á frían bjór. Það var verið að velja fólk í einhverjar stöður og Stebbi kom mér í það klandur að bjóða mig fram í árshátíðarnefndina... sem betur fer rústaði mótframbjóðandinn minn kosningunum og þakka ég ræðu hans Stebba :) Fjúff! Anyways, þá fór mar svo eikkað að dansiballast á 11 og Celtic og
fór heim eikkað um 4-leitið.

Kárahnjúkavirkjun
Með
Á móti

Svo er verið að kaffæra landsvæðinu í kringum Kárahnjúkavirkjun þessa stundina og lýsi ég andstöðu minni algjörlega á þessu framkvæmdum. Þetta er nú meira BANANAlýðveldið sem við búum í! Ég er með skoðanakönnun á þessu bloggi svo þið getið látið hug ykkar í ljós varðandi þetta mál.
Í lokin vil ég benda á nokkra skemmtilega treilari fyrir væntanlegar bíómyndir...

Borat

Teenage Mutant Ninja Turtles (teaser)

Clerks II

Transformers (teaser)

Spiderman 3

Jackass 2

The Simpsons Movie (teaser)

Ghost Rider

The Texas Chainsaw Massacre: The Beginning

Stranger Then Fiction

< Til baka