Blogg

Ég

Myndir

Contact

Tenglar

5,5 [Varúð! Blogg inniheldur drama]
07.11.06 .

Í dag erum við Erla búnað vera saman í fimm og hálft ár! vúhah! :) Ekki hægt að hugsa sér betri kærustu, unnustu eða vinkonu en hana Erlu mína! Ég elska þessa dúllu! :) Hlakka til þann 16. júní, en þá ætlum við að gifta okkur í Lágafellskirkju í Mosó :) Svo skrítið að hugsa til baka, hvað við erum búnað vera saman lengi... Ég var reyndar bálskotinn í gellunni í nokkra mánuði áður en mér tókst að tala eitthvað við hana og nokkrum mánuðum eftir það þá byrjuðum við saman... fyrsti kossinn meira að segja fyrir utan Kaffi Vín á Laugarveginum, þar sem mar var alltaf hangandi, og nánast bjó á þeim tíma. Gaman samt að segja frá því að afi minn bjó í sama húsi þegar hann var bara lítill pjakkur. Mar tók fyrst eftir Erlu þegar að mar var að byrja á Upplýsinga- og fjölmiðlafræðibraut í Iðnskólanum, en þá var sú braut glæný.
Fljótlega eftir að við byrjuðum saman þá fór Erla út til USA til að passa litlu frænku sína og var þar í ca. 4 mánuði... og var þvílíkur söknuður í gangi þann tíma... skrifuðu hvor öðru löng bréf bæði í email og í pósti... og held að foreldrar mínir hafi ekki verið neitt voðalega hrifin af símareikningnum sem hækkaði um einhverja þúsundkalla :P ...Svo var hún ennþá úti þegar að 9/11 átti sér stað, en þá bjó hún í Brooklyn... ég man þegar ég heyrði þessar fréttir þá var ég að vinna í Mosfellsbakaríinu að djúpsteikja kleinur og ég bara varð sjúklega áhyggjufullur um hana Erlu mína og varð bara geðveikt utan við mig, sullaði helling af heitu feiti á sjálfan mig en var sem betur fer var mar í svuntu....sem fuðraði reyndar næstum því öll upp! Svo reyndi mar að hringja í hana Erlu á fullu en það svaraði ekki og ég hringdi þá í foreldra hennar og sagði þeim hvað hefði gerst úti og spurði hvort þau hefðu eitthvað heyrt í Erlu, en þau voru ekkert búnað heyra í henni... Svo loksins náði ég sambandi við hana og þá var sem betur fer allt í lagi með elskuna mína... en hún var alveg skíthrædd og grátandi... mjög óþæginleg tilfining að geta ekki farið til hennar og huggað hana og knúsa... Það var reyndar planið hjá henni að vera lengur í USA, ca. 2-3 mánuði í viðbót, og ætlaði ég þá að koma í heimsókn til hennar i NY í desember, en hún kom heim fyrir þann tíma, eða í nóvember.
Ég elska þig Erla! og takk fyrir öll árin, hlakka til að eyða fleirum með þér!

Ég og Erla árið 2002, þá búnað vera sama í 1 ár :)

< Til baka