Ég
rakst á svolítið sérstaka
kaffigerð á netinu sem kallast Kopi
Luwak. Ég hef ekki smakkað
þetta, og mig langar það ekkert
sérstaklega mikið. Þetta er
eitt dýrasta kaffi sem hægt er
að finna í heiminum í dag
og ég veit ekki alveg hvort að það
sé útaf því að
það eigi að vera svona æðislega
gott, eða fínt eða hvort að
það sé bara svona dýrt
að búa það til.

Tilbúningur
á Kupo Luwak fer þannig fram: Kaffibaunirnar
eru borðaðar af einhverskonar desdýri/þefketti
(Paradoxurus hermaphroditus), sem er hluti af
mataræði þess. Auk þess
borðar dýrið pöddur, smávaxin
spendýr og ýmsa ávexti.
Baununum er leyft að fara í gegnum
meltingakerfi dýrsins, sem að nær
einungis að brjóta baunirnar niðir
að hluta til en baunirnar komast nánast
heilar í gegnum meltingarkerfið.
Að lokum skila kaffibaunirnar sér
úr dýrinu í saurformi.
Saurinn er tekinn og skolaður og léttristaður
svo að sem mest bragð haldist. Þetta
á víst að vera voða gott...
ef þú vilt kaupa þér
þá geturu smellt
hér... endilega láttu mig
svo vita hvernig þessi skítur bragðast!
