Blogg

Ég

Myndir

Contact

Tenglar

Testember í nánd
28.11.06 .

Ég er búnað verað læra eins og mófó eskimó hérna upp á síðkastið... Þá aðalega í ritgerð, er núna að skrifa ritgerð fyrir Íslandssögu fyrir 1815, sem mér finnst nú alveg ágætlega áhugavert tímabil en finnst þetta námskeið ekki alveg verað gera sig samt sem áður. Ég er að skrifa um hlátur fyrr á öldum og var að klára þá ritgerð...vúhú! Þá er barað koma sér í næstu ritgerð sem ber fyrirsögnina; Hvenær varð heimurinn til? Mismunandi hugmyndir um aldur heimsins. En það er seinni ritgerðin mín fyrir námskeiðið Heimsmynd Íslendinga 1100-1400. Styttist svo í desember, og er ég í prófum frá 8. til 21. des...urg!
Svo skrapp mar út á land þarseinustu helgi með famelíunni í sumarbústað. Kreisí ass langt síðan að mar gerði eitthvað soleis. Við vorum í Miðskógum (minnir mig að það heiti), frekar stutt frá Geysi. Það var alveg yndislegt að komast aðeins úr borginni og liggja í rólegheitum og spila og skreppa í heitann pott og svona. Sömu helgi fór Erla með vinkonum sínum úr enskunni í sumarbústað sem var ca. 30min akstur frá, þannig á laugardagskvöldi/nóttu fór mar þangað og tjékkaði á géllunum í SingStar....sem var fokking snilld! haha :D Ég skellti nokkrum myndum inn á myndasíðuna mína af þessari helgi.
Stebbi og ég kíktum á Man Utd - Chelsea á sunnudaginn....djöflans andskotans vesen! Leikurinn fór 1-1, sem er nú reyndar betra en tap! en ég hefði viljað fá sykursætann sigur! GHAAAA!!!! En Man Utd. er þó enn á toppnum þegar ég skrifa þetta blogg! :)


< Til baka