Blogg

Ég

Myndir

Contact

Tenglar

Hó hó hó!
27.12.06 .

Þetta eru búnað vera snilldar jól! Nema það að mar er búnað vera með einhverja helvítis magapest inn á milli, var alveg að drepast á aðfangadag og jóladag, en mar er orðinn hress núna.
Á
aðfangadag fórum við Erla í matarboð til tengdó og fengum djúsí hamborgarahrygg, mmmmm, i like! high five! Svo opnuðum við pakkana og fengum okkur kaffi. Seinna um kvöldið fórum við Erla í Mosó til fjölskyldu minnar og fengum ís þar og ennþá fleiri pakka, það var alveg mega kósí. Mamma og pabbi voru einmitt búnað fá sér glænýtt 37" sjónvarp og gáfum við Erla þeim m.a. DVD disk með arineldi, og var eldurinn í gangi yfir kvöldið, rosa kósí... lá við að maður finndi fyrir hitanum :) Svo fórum við heim um 1-2 leitið og opnuðum nokkra pakka heima :)
V
ið fengum böns af gjöfum! M.a. Indiana Jones DVD safnið, Pink Panther DVD safnið, Clerks þættina, böns af áhugaverðum bókum, expressó/cappochino kaffivél, vöfflujárn, skó, föt, ilmvatn, kaffi, Pirates of the Caribbean 2, rúmföt, Ps2 leiki (GTA: Libertie City Stories og SingStar 80's), náttföt, lampa o.fl.
Þ
að var reyndar svolítið skrítið að hafa ekki Elísubetu systir með okkur um jólin, en hún er í Mexíkó i heimsókn hjá vinkonu sinni og var þar yfir jólin og verður þar líka yfir áramótin. *saknisakni*
Anyways, mig langaði barað þakka pent fyrir mig! ... ætlað farað narta í smákökur og kíkja aðeins í PS2 áður en maður þarf að farað halda áfram að ritgerðast fyrir skólann.


The Hoff!

< Til baka