Blogg

Ég

Myndir

Contact

Tenglar

Veni, Vidi, Vino
22.01.07 .

Ég kom, ég sá, ég drakk! - Stutt lýsing fyrir síðasta föstudagskvöld. Maður skellti sér nefninlega í vísindaferð með sagnfræðinemum til Árbæjarsafns, þar sem maður tók m.a. nokkur spor á diskódansgólfinu á "Hollywood" og stofnaði pönkhljómsveit sem entist í 10 mín. :)


Stuð á Hollywood árið 1984

Kíktum svo í bæinn og tjékkaði maður aðeins inn á Highlander sem er einhver nýr staður. Mér leyst bara drulluvel á pleisið ... reyndar var engin tónlist þar og enn verið að laga eitt og annað í húsinu, en so far so good. Svo kíkti maður á einhverja kostningarvöku á Pravda, og síðar á Dillon og Celtic. Helvíti mikið stuð, þó ég hafi drukkið aaaaaðeins of mikið. :P
Kvöldið áður, eða á fimmtudagskvöldinu, kíktum við Stebbi á Dillon til að tjékka á hljómsveit sem heitir Grasrætur (smellið hér til að skoða MySpace síðuna þeirra) og voru þeir bara alveg ágætir. Þeir flokka tónlistarstefnu sína sem blanda af Blues / Rock / Psychedelic. Komu svo einhverjar stelpur svo að borðinu okkar og spurði önnur þeirra, sem var orðins ansi drukkin, hvort við værum grúppíur, hahah, góð leið til að byrja samræður :) En já, þær voru ansi skrautlegar og bara gaman af því.


Dillon

Svo er maður loksins búinn að fá niðurstöðurnar úr öllum námskeiðunum sem maður tók sl. önn, og sjibbídú! ég náði öllu! vúhíhaaaaa! Var með meðaleinkunina 7.13 :) Það verður svo nóg að gera þessa önnina, þessa önnina er ég skráður í:

  • Heimsaga eftir 1815
  • Aðferðir II (Sagnaritun og söguspeki)
  • Nauðungarflutningar 1490-2010
  • Heimildaleit í skjalasöfnum

Í lokin vil ég óska afmælisbarninu, honum Óla (Kilmer??) til hamingju með aldarfjórðungsafmælið sitt! ;)


Ég og Óli að vinna í okkar fyrstu uppfinningu; fljúgandi barþjóninum

< Til baka