
Þessi
"frétt" var á mbl.is
í gær:
Veröld/Fólk
| mbl.is | 23.1.2007 | 13:08
Tom Cruise er „Kristur“
Vísindakirkjunnar
Leiðtogar
sértrúarsöfnuðarins
Vísindakirkjunnar segja leikarann Tom
Cruise vera „hinn útvalda“
er útbreiða muni fagnaðarerindi
kirkjunnar.
David
Miscavige, sem er hátt settur innan
Vísindakirkjunnar, er sannfærður
um að í framtíðinni
verði Cruise tilbeðinn líkt
og Jesú um víða veröld
og taka að sér hlutverk spámanns
kirkjunnar.
Heimildamaður
sem þekkir Cruise vel sagði við
bresk blaðið The Sun: „Tom hefur
verið tjáð að hann sé
einskonar Kristur Vísindakirkjunnar.
Líkt og Kristur hefur hann verið
gagnrýndur fyrir viðhorf sín.
En komandi kynslóðir munu átta
sig á því að hann
hafði rétt fyrir sér, alveg
eins og Jesú.“
Cruise
er einn af æðstu mönnum Vísindakirkjunnar,
en hann gekk í hana um miðjan níunda
áratuginn og eiginkona hans, Katie
Holmes, hefur einnig snúist til vísindatrúar.
Það
var bandarískir vísindaskáldsagnahöfundurinn
L. Ron Hubbard sem stofnaði Vísindakirkjuna.
Hér
er upphafssíða Tom Cruise


HE'S
NUCKING FUTS!