Blogg

Ég

Myndir

Contact

Tenglar

Kjánalegt
12.02.07 .

Síðasta vika var sú kjánalegasta í langan tíma!

  • Ég festist í leðurjakkanum mínum, rennilásinn klofnaði! Ég fékk svona semi-innilokunarkennd og varð bara rosalega pirraður út í leddarann og gleymdi mér aðeins í baráttunni við að komast úr þessari prísund. Held að ég hafi líkst mörgæs á allann hátt; er með bumbu (sem stóð út úr leðurjakkanum þar sem að rennilásinn var í fokki!) - leðurjakkinn er svartur og var í hvítri skyrtu innan undir - og hreyfingarnar mínar voru asnalegar!

  • Ég sá asíska konu borða úr ruslagáminum hliðiná Hlölla
  • Ég átti að fara með framsögu í einum tíma. Átti að lesa einhverjar greinar og fjalla um þær. Það var svo mikið að gera hjá mér í öðrum áfanga að ég náði ekkert að sofa um nóttina og vakti hana alla til þess að ná að lesa allt.... ég las rangar greinar!
  • Ég bý á þriðju hæð og það lá fiskur á svölunum hérna með gulrótarbita (eða eitthvað álíka!) ofan á sér! WTF?! Ég flokka þetta sem X-file, læt Mulder og Scully pæla í þessu því ég fatta þetta ekki alveg!

Hér er þessi helvítis fiskur! Gulrótarbitinn var ofan á honum en var búinn að detta af þegar að ég tók þessar myndir.

Vikan endaði þó betur en hún byrjaði, þar sem ég fór á Þorrablót með sagnfræðinemum sem var frekar hressandi og mikil þörf á Brennivíninu til að gleyma þessari asnalegu og kjánalegu viku! Pffssh!

 

< Til baka