Blogg

Ég

Myndir

Contact

Tenglar

Final Fantasy XII
19.02.07 .



Final Fantasy VII - Fighting Theme

 

Næsta föstudag, eða þann 23. febrúar, kemur Final Fantasy XII (FF XII) út í Evrópu fyrir PS2. Leikurinn kom út í Japan fyrir ca. einu ári og ca. hálfur ári síðan í USA, þannig að það er þegar búið að gagnrýna leikinn og segja frá hans helstu kostum og göllum. Á heildina litið fær leikurinn mjög góða einkun, eða meðaleinkunnina 9.3 af 10 mögulegum (www.gamerankings.com) og 9,4 frá notendum GameSpot. Til samanburðar má finna meðaleinkun úr eldri Final Fantasy leikjum á GameRankings. Þar sem ég treysti frekar á einkunagjöf frá leikjanotendum sjálfum þá hef ég þær með til samanburðar (þær tölur eru fengnar frá GameSpot).

  Meðaltal Notendur
FF VII 9,3 9,6
FF VIII 9,1 9,2
FF IX 9,3 9,1
FF X 9,1 9,3
FF XII 9,3 9,4

Algengast er að flokka FF VII og X sem tvo bestu Final Fantasy leikina frá upphafi, og þá einkum FF VII sem kom út fyrir 10 árum í PS. Þrátt fyrir að hafa komið út fyrir heilum 10 árum þá er fólk enn jafn hrifið af þeim leik vegna söguþráðar hans sem þykir með þeim betri enn þann dag í dag.


Helstu sögupersónur FF VII


Final Fantasy leikirnar flokkast sem RPG, eða Role-Playing Game (hlutverkaleikur á íslensku). FF leikirnar (a.m.k. frá FF VII) einkennast einkum af góðum söguþræði, góðri tónlist sem passar vel inn í stemningu leikjanna, ákveðnu bardagakerfi sem nefnist ATB (eða Active Time Battle), skemmtilegum húmor og góðu gameplay (man ekki hvað það kallast á íslensku). T.d. tekur það oftast meira en 40-45 klst. að klára einn FF leik og ef menn leggja í öll þau aukaverkefni sem eru í boði getur það tekið 10-20 klst. til viðbótar að klára einn leik.
Söguþráður Final Fantasy XII gerist aðalega á því landsvæði sem kallast Ivalice, þar sem keisaradæmin Archadia og Rozarria eru í stöðugu stríði og lendir konungsríkið Dalmasca á milli þeirra. Þegar að Archadia ræðst inn í Dalmasca og hertekur það þá stofnar prinsessan Ashe mótspyrnuhreyfingu. Prinsessan hittir síðar Vaan, sem er ungur ævintýramaður sem dreymir um að stjórna sínu eigin loftskipi. Vaan og Ashe berjast svo saman gegn harðstjórn Archadian keisaradæmisins.


Opnunarsena FF XII (7:02)


Helstu sögupersónur leiksins eru: Vaan, Penelo, Basch, Ashe, Balthier, Fran, Vayne, Larsa og Judge Gabranth. Hægt er að lesa um þá alla á vefsíðu Final Fantasy XII.

 


Nokkrar af helstu sögupersónum FF XII


Fran (playboy-kanína?)

Eitt af því sem hefur gefið FF leikjunum ákveðin karekter og brotið leikinn skemmtilega upp eru summonin (til að fá nánaru útskýringu á summons og lista yfir kvikindin, smelltu þá hér). Þetta eru kratfmiklar verur, oftast ómennskar, sem að hafa einhver ákveðin eiginleika (eldur, jörð, vatn, elding, vindur, eitur o.s.frv.) og eru þetta oft kvikindi sem leikjaframleiðundurinir hafa sótt í ýmiskonar goðafræði og þjóðsögum. Það verður ekki brotið þá reglu í FF XII og eru summonin í nýjasta leiknum köllu "Espers" og eru þau 13 talsins. Hægt er að lesa um og skoða myndir af þeim með því að smella hér.


Final Fantasy XII Summons (6:52)

Eins og nefndi áður þá hefur bardagakerfi FF leikjanna verið mjög vinsælt. Active Time Battle (ATB) virkar þannig að ákveðinn tími líður áður en hver karekter getur gert. Klassíska ATB bardagakerfið (eða Turn Based Fighting) sem svo margir kannast við úr FF leikjunum er ekki notað í þessum nýja leik. Þeir vildu greinilega prufa eitthvað nýtt og er núna meira flæði í leiknum.


FF XII gameplay (0:57)

Í ATB (og/eða Turn Based Fighting) þá stjórnaði leikmaðurinn öllum þeim persónum sem tóku þátt í bardaganum, nú stjórnar maður aðeins einum leikmanni í einu og tölvan stjórnar hinum, sem mér finnst ekki hljóma neitt voðalega vel. Hér fyrir neðan er myndband sem sýnir gamla kerfið, ATB. Nýja bardagakerfið sem notað er í FF XII kallast ADB, eða Active Dimension Battle.


ATB gameplay úr FF IX (5:33)

Til þess að uppfæra hæfileika karekteranna þarf maður að læra á e-ð sem kallast Licence Board sem hægt er að lesa betur um á Final Fantasy XII vefsíðunni. Hér í lokinn á þessari stuttu umfjöllun ætla ég að taka fyrir nokkrar tilvitnanir af leikjasíðum.

GameSpot skrifar:
The Good: Inspired art direction and a strong cast of characters draw you into the world; lengthy quest spans dozens of hours of gameplay; redesigned strategic combat system offers considerable depth and complexity; all battles are fought in context while exploring, so no random encounters; excellent music and voice acting.
The Bad: The gambit and license-board systems are complicated to get used to; a bit too much running around back and forth in some spots.

IGN skrifar:
So, the grandiose claims that it’s the best role-playing game on PS2 do ring true. It’s a grand, epic, beautiful achievement that has the cojones to build on, not just rely on, what this series has been doing for years. However, the PS2 isn’t a platform served by a huge choice of RPGs – most follow this same model, where role-playing is limited to increasing skills by hitting things and going where you’re told, rather than ever actually inhabiting a character. FFXII takes giant leaps from an established formula and is without doubt a fantastic game, but as the clear pack leader, it has a duty to push a style that’s still set in its ways even further.

GameSpy skrifar:
Objectively, Final Fantasy XII is hard to knock. The game looks great, sounds great, has great writing, offers a lengthy and satisfying journey, has a great technical element and engaging sword-swinging and spell-slinging. It would be difficult to find a game out there with better production values, or that meets its goals so successfully while still introducing new ideas and innovations. If you have it in you to enjoy a console RPG -- any console RPG -- you should have no problem enjoying this expertly crafted title.

Svo má vænta næsta titils, Final Fantasy XIII, 2008-2009 á PS3.



Nokkrar vefsíður og sýnisbrot fyrir áhugasama:

Final Fantasy XII síða Square-Enix Europe

Eyes on Final Fantasy (um alla FF leikina)

Final Fantasy VII: Advent Children (kvikmyndin)

Treiler fyrir Final Fantasy XIII


Svo er ekki nema ca. mánuður í að God of War II komi út og mun ég örugglega taka eitt nördakastið til viðbótar og fjalla um hann hér á blogginu mínu... þó að ég efast um að það séu margir sem lesa bloggið mitt sem hafa einhvern áhuga á því, hehe :)

< Til baka