Blogg

Ég

Myndir

Contact

Tenglar

God of War II
14.03.07 .

Liðin eru tvö ár síðan að leikurinn God of War kom út fyrir PS2 leikjavélina. Þann 30. mars næstkomandi mun framhaldið af þeim leik, God of War II, koma út í Evrópu (kemur 13. mars í USA).

Söguþráður leiksins er á þessa leið:

God of War Saw Kratos, a mortal warrior, set upon an epic quest to dethrone a God. But his journey did not end there. In God of War II, Kratos sits atop his Olympus throne, as the new God of War - far more ruthless than Ares ever was. To end his continued torment, Kratos must journey to the far reaches of the earth and defeat untold horrors and alter that which no mortal, or god has ever changed, his fate. God of War II sets an epic stage for a devastating mythological war to end all wars. [Tekið af The Official God of War II vefsíðunni].

Ég spilaði, og kláraði, fyrri leikinn og heillaðist ég verulega að honum, þá einkum útaf skrímslunum sem maður er að berjast á móti en leikjaframleiðendurnir sóttu marga þeirra (beint og óbeint) úr grísku goðafræðinni, auk þess eru bardagabrögð aðalpersónunnar (Kratos) allsvakalega flott. Leikurinn var vel gerður í alla staði; sköpun leikjapersóna, söguþráðurinn, grafíkin, hljóðið, ending leiksins og þæginleg stjórnun, allt eru þetta þættir sem eru til fyrirmyndar í God of War. Við þetta má svo bæta að fyrri leikurinn fær meðaleinkunnina 9,3 samkvæmt GameRankings. Hægt er að lesa meira um fyrri leikinn á The Official God of War vefsíðunni.


Kratos, aðalpersóna God of War

God of War II virðist ekki gefa fyrri leiknum eftir á neinn hátt og fær hann m.a. hærri meðaleinkunn, eða 9,5. Það er kannski fátt nýtt hér á ferð en þegar að God of War kom út á sínum tíma (2005) þá sýndi sá leikur hvað bjó í PS2 leikjatölvunni og nýtti flesta möguleika tölvunnar í botn, en þar sem PS3 er að farað lenda bráðlega í Evrópu þá þykir þetta kannski ekki vera eins rosaleg mikil bylting eins og árið 2005. Engu að síður mun God of War II líklega vera eins ofbeldisfullur, flottur og spennandi eins og fyrri leikurinn, ef ekki meira. GameSpot hefur m.a. þetta að segja um leikinn:

You could easily call God of War II a significantly more brutal game than the last. Though the core combat engine hasn't changed a lick, the action itself feels even more hysterically violent than before. Many of the goriest moves continue to come from context-sensitive button-pressing minigames. Larger, more powerful enemies can often be killed in some completely awesome way by wearing them down until a button icon appears above their head. From there, you press the buttons that pop up onscreen, and Kratos will, for example, yank the eye out of the head of a Cyclops or twist off the head of a medusa like a pop-top, among others. Many of the final blows delivered to the game's bosses follow the same type of formula, and not only are there more of them than in the last game, but they're even more fun to kill as well. The whole game is basically a giggle fest for violence junkies.

Samkvæmt þessu ætti leikurinn að vera andskoti brútal!


God of War II Artwork

Það virðist þó ekkert vera nýtt eða ferskt í þessum leik. Bardagakerfið er það sama og í fyrri leiknum að mér skilst. Þ.e.a.s. með tímanum læriru flottari og flóknari brögð (líkt og Devil May Cry leikjunum) sem spilarinn framkvæmir með því að muna ákveðna takkarunu utan af og til þess að ljúka við erfiðari óvini þá þarf spilarinn að láta reyna á viðbrögðin sín með því að vera nógu og snöggur við að ýta á réttu takkana sem koma upp á sjónvarpsskjánum og í verðlaun fær maður að gera eitthvað svalt lokabragð; eins og að rífa hausinn af óvininum eða e-ð álíka smekklegt. En eins og ég segi þá er fátt sem ekkert nýtt í þessum leik nema þá söguþráðurinn og er ég alls ekki ósáttur við það, þar sem fyrri leikurinn var bara brillíjant í alla staði! Ég hef hér nokkur myndbönd í lokin á þessari stuttu umfjöllun og mæli ég með neðsta myndbandinu sem er frá GameTrailers, það myndband er lengra en hin tvö og upplausn myndbandsins einnig mun betri.


God of War II - Trailer (1:48)


God of War II - Gameplay (2:03)

God of War II - Gameplay og comments frá GameTrailers


Vefsíður og sýnisbrot fyrir áhugasama:

Official God of War Website

Official God of War II Website


 

 

< Til baka