Blogg

Ég

Myndir

Contact

Tenglar

Éttu skít! ... fyrir börnin
24.03.07 .

Muniði eftir kúkakaffinu sem ég bloggaði um í nóvember? Kallast Luwak kattarkaffi. Ef ekki, þá getiði skoðað bloggið mitt um kaffið með því að smella hér.
Á
stæðan fyrir að ég er að minnast á þetta kaffi er sú að þeir hjá Te og Kaffi eru farnir að flytja þennan horbjóð inn til landsins. Þið getið nálgast þennan hlandvolga kaffisopa á kaffistofum Te og Kaffis, nánar tiltekið; í verslun Saltfélagsins við Grandagarð, í verslun Eymundsson í Austurstræti, í kaffihúsinu Smáralind, í Griffli Skeifunni og hjá SÁÁ í Efstaleiti. Allur ágóði af sölu þessarar kaffitegundar rennur til styrktar langveikra barna.


Fallegt gjafasett með Luwak skítakaffi

 

Éttu (eða drekktu) skít og styrktu gott málefni!

< Til baka