Jæja
dúddar og dúddur, bara eitt próf
eftir hjá kjaddlinum! Var í heimssöguprófi
í fyrradagog gekk svona lala, svo er
maður búinn að fá tvær
lokaeinkunnir af fjórum og er ég
a.m.k. búinn að tryggja mér
8,5 einingar af þeim 18,5 sem ég
er skráður í, vúhú!
:) Þannig að nú er bara prófið
eftir í söguspeki, sem ég
fer í þann 10. maí, og síjeeeet
hvað verður skemmt sér og drukkið
eftir það! Vúhú!

Eftir
prófið kíkti mar svo á
fótboltaleik með Stebba gaur, Man
Utd - AC Milan í meistaradeildinni...
það var bara sorglegt að horfa
á leikinn, a.m.k. fyrri hálfleik,
en lokastaðan var 3-0 fyrir Milan og Man
Utd því dottnir út *tár*.

Var
svo um daginn að tjékka á
mics fyrir SingStar, Erla fékk nebbla
SingStar 80's í jólagjöf
en okkur vantar mics. Mar tjékkaði
svo á lögunum sem voru á
SingStar Legends og var svona að pæla
í að kaupa kvikindið bara í
pakka með mics, og hélt nú
að ef maður keypti stöff saman
í setti væri það eitthvað
ódýrara, en neinei.