Sl.
fimmtudag kláraði ég seinasta
prófið og þar með búinn
með önnina. :) Kéddlinn hélt
upp á það með því
að sötra bjóra með sagnfræðingunum
og kíktum við svo aðeins niðrí
bæ. Þar þurti ég endilega
að vera með einhvera Guffa-takta og
misstíga mig það svakalega
að ég braut eitthvað bein í
ristinni (svæði fimm sagði læknirinn....wtf
er það?!). Þannig að núna
er lúðinn bara í gipsi frá
tám og upp að hné á
vinstri fæti. :/ Frekar mikill bömmer
þar sem ég þarf að vera
með gipsið á mér næstu
6-8 vikurnar og á næstu 6-8 vikum
þá er ég að farað
byrjað vinna, farað gifta mig og í
brúðkaupsferð til Krítar.
Farinn
að trúa því að Eurovision-tíminn
sé nýi föstudagurinn þrettándi
í mínum heimi! Því
að það var einmitt líka
Eurovision í gangi seinast þegar
ég brotnaði. HNUSS!
(Smellið
hér til að skoða það
blogg).