Blogg

Ég

Myndir

Contact

Tenglar

Geeks R Us
21.05.07 .

Ég hef ákveðið að koma hér og nú officially úr nördaskápnum. Mamma, pabbi, elsku fjölskylda og vinir; ég er nörd! Fólk hefur nú grunað þetta vel og lengi, og ég hef ekki beint verið í einhverri afneitun, en ákvað að segja ykkur öllum opinberlega til að létta af hjartanu.


Úr myndinni Revenge of the Nerds

Fyrir þá sem trúa þessu ekki enn, þá eru hér nokkrar staðreyndir um mig sem ættu að útskýra betur af hverju ég er nörd.

  • Ég spila tölvuleiki - Vissulega spila margir tölvuleiki, en ég spila reglulega stimplaða nördaleiki sem einnig eru þekktir sem hlutverkaleikir, hér er ég einna helst að tala um Final Fantasy-leikina og Dragon Quest.
  • Ég horfi á teiknimyndir - Aqua Teen Hunger Force, Drawn Together, Futurama, Simpsons, Robot Chicken, South Park og Invader Zim eru þær teiknimyndir sem ég horfi helst á. Að horfa á teiknimyndir þarf ekki endilega að vera nördalegt, en það gefur kannski hálft nördastig.
  • Ég er sjúklega retro - Ég elska retro hluti eins og t.d. gamla teiknimyndaþætti (Thundercats, Transformers, He-Man, G. I. Joe o.fl.), finnst old school tölvuleikir, kvikmyndir og action figures ekkert nema kúl! Ég á t.d. alla Thundercats þættina á DVD. :)
  • Ég er að læra sagnfræði - Fátt nördalegra, nema þá kannski tölvufræði. Tölvufræði er amk pínku kúl líka, get ekki sagt að það sé eitthvað kúl við sagnfræðina.
  • Ég er klaufi - Ég á það til að vera versti klaufi, bæði hvað varðar orðaval og hegðun.
  • Mig langar á tölvuleikjasýningu - Eins og t.d. E3.
  • Ég er fótbrotinn og á hækjum - Og verð það næstu 5-7 vikurnar.
  • Ég fíla skrítna tónlist - Fyrir utan að fíla Aphex Twin og Squarepusher þá flokkast það varla sem nördatónlist, en það heitasta hjá mér núna í tónlistarfíling er 8-bita tónlist. Þ.e.a.s. svipuð hljóð notuð og í gömlu Nintendo og GameBoy til þess að búa til tónlist.
  • Ég bý stundum til sjónvarpsdagskrá - Já, það er rétt, ég fer stundum á heimsíðurnar hjá helstu sjónvarpsstöðunum sem við Erla náum og bý til dagskrá út frá því hvað við viljum horfa á... og mér finnst þetta skemmtilegt!
  • Ég hef leikið ork - Ég og frændi minn Danni lékum hálfgerða orka í kvimyndinni Astrópíu (Dorks and Damsels), hægt að skoða kvikmyndatreilerinn með því að smella hér.

Dettur nú ekkert fleira í hug eins og er, þó það sé eflaust hægt að nefna eitthvað fleira. En ég tek það þó fram, þó ég sé nörd þá er ég ekki ofur-nörd :) Ég t.d. spila ekki hlutverkaleiki in da real world (Warhammer, AD&D o.s.frv.), ég er ekki mikill Star Trek-fan og tilbið ekki Star Wars-myndirnar þó mér finnist þær góðar... tilbið þær bara einstaka sinnum... ásamt LOTR... ssshhhh! Svo eru líka ýmsir hlutir sem gera mig af kúl gutta, eins og ég á sólgleraugu og heiti í rauninni Matthew McConaughey! Pís át bitsjéz!


Ég að labba niður Laugarveginn

(Lét fylgja hér eitt myndband í lokinn sem ber titilinn "Video Games Live", þar er sinfóníuhljómsveit að spila lög úr mörgum vel þekktum og mjög svo gömlum leikjum. Enjoy!).

< Til baka