Nú
er búið að steggja fjarkann fjandinn
hafiða! :) Setjist
nú niður krakkar mínir, því
nú ætlar Bjarki sagnfræðingur
að segja ykkur söguna af fótbrotna
klaufanum og steggjunninni hans!. Einu sinni
var......
Það
má svona segja að semi-byrjun steggjunarinnar
hafi byrjað kvöldið áður,
föstudagskvöldið. Þá
átti Stebbalingurinn
(aka Mumbo Black Ninja) afmæli, orðinn
23 ára! HAHAHA! Pælið í
gamlingja!!! ;) Hann var með hinn fínasta
hitting hjá sér þar sem
var vel drukkið, ég missti mig svona
aðeins í White Russian fíling
hjá honum, nýbúinn að
fá námslánin þá
;) Ég held að ég hafi verið
kominn heim og uppí rúm um 2-3
leytið.

White Russian
Kl.
6 á laugardagsmorgni vöktu strákarnir
mig (Ívar,
Oddur,
Stebbi,
Kobbi,
Danni,
Snorri
og Gummi) með látum og hafði
ég ekki hugmynd um hvað var að
gerast! Var ég vakandi?! Var mig að
dreyma?! Var þetta martröð?!
HVUR DJÖFULLINN! :D En
mar tók þá nú í
sátt þar sem Snorri steikti hið
besta egg og beikon handa kappanum og fékk
ég mér nokkra bjóra með,
my kind of breakfast! :) Fyrir þá
sem ekki vita þá er ég enn
fótbrotinn og kominn í göngugips
(ég labba eins og fjölfötluð,
hjólbeinótt mella í því!)
þannig að strákarnir höfðu
úr takmörkuðu að velja þegar
kom að steggjunninni. Það var
byrjað að fá sér fleiri
bjóra eftir beikonið og fórum
við strákarnir í Wii Sport
(snilld!!!) ca. til hádegis og fórum
við svo niðrí keiluhöll
þar sem við fengum okkur bjór
og borgara. Ég var á þeim
tímapunkti byrjaður að finna
vel fyrir þreytu og ölvun (ég
veit!!! ég er gamall kall!!!) :) En sjitt
hvað borgarinn lagaði mann!...og bjórinn!
:D Strákarnir voru búnir að
redda hjólastól handa gamla fótbrotna
kallinum :D Djöfull leið manni furðulega
í hjólastólnum. Við
tókum svo einn keiluleik, og var fengið
eitthvað stálbitahjálpardrasl
handa fjölfatlaða manninum (a.k.a.,
mér!) , en ég vildi vinna! þannig
ég neitaði að nota það
eftir eina tilraun :P Stebbi vann leikinn og
einhver náði heilum 38 stigum :)
Áður en við fórum í
keiluhöllina þá ætluðu
strákarnir að senda mig að dorga
einhversstaðar niðrí bæ,
en það var hætt við það
vegna veðurs.

Að
lokinni keilu var manni hent niðrí
Kringlu og skellt í hjólastólinn.
Þar var manni sagt að fara í
barnafatabúð og biðja um tígurs
g-streng og brjóstarhaldara! Svipurinn
á afgreiðslukonunni var priceless!
en sjitt hvað mér leið illa og
fáránlega að gera þetta!
Það var þó ekki nærri
því jafn hart og næsta mission
sem var að fara inn í apótekið
og biðja um Rohipnol! Sem er betur þekkt
sem "nauðgunarlyfið".... sjitturinn!
Ég hélt án gríns
að afgreiðslukonan þar ætlaði
að kalla á öryggisverði,
eða eitthvað verra! Þannig þegar
hún spurði mig eftir stuttlegt samtal
hvort að lyfið væri notað
í eitthvað annað en bara til
að auðvelda að nauðga fólki
þá þurfti ég að
segja eitthvað, og eina sem mér datt
í hug var... "Eeehhh...Jámm...
Það er líka notað til að
gelda hunda!!" ....Bjarki...góður!
hehehehe. Svo var skellt á manninn bleikri
uber-gay-legri spöng og bleiku enn uber-gay-legra
fjaðradóti um hálsinn!
Fór svo í la senza og var að
rannsaka undirfötin þar en beilaði
á miðri leið þar sem ég
átti að biðja um að fá
að máta g-strenginn og fá
hjálp við það frá
afgreiðslukonunni :D hahaha! Á meðan
þetta allt var að gerast var Ívar
í felum með vídjócameru
og tók þetta allt upp... þannig
ég get skammast mín og hlegið
af bjánaskap mínum og þeirra
hvenar sem mér hentar! :D Kíktum
svo í Hagkaup og keyptum í kvöldmat
þar sem ég var skipaður í
að ná í hitt og þetta....og
var alveg magnað hvað strákarnir
voru alltaf heillaðir af hlutunum sem voru
lengst frá mér og helst í
efstu hillunni, þannig að fatlaði
maðurinn í hjólastólnum
náði aldrei í þá!
:) Svo fann Oddur einhvern ananas þarna
sem hann varð svo heillaður af að
það kæmi mér ekki á
óvart ef að það yrði
bara double wedding þann 16. júní
;) En jamm svo eftir það var keyrt
að Hlemm!

Þegar
við vorum komnir að Hlemm þá
fékk ég að runta á
mínum hraða niður allan helvítis
Laugarveginn! Fékk mikið af allskonar
lúkkum á mig á leiðinni.
Svona "heyyy til hamingju" og "helvítis
kynvillingur!" og "haha, steiktur!"
:) Var alveg áberandi hvað útlendingarnir
höfðu gaman af þessu, Bjarki
a la fatlós bara orðinn markaðsvara
?? ;) Eftir Laugarvegsrúntinn minn þá
var mér skipað að mingla við
fólkið inn á Kaffi Kósí
og hössla bjór, en það
var svona frekar lítið að gera
þar inni, bara tvö pör, þannig
að maður sat þarna í stuttan
tíma og skellti í sig bjórnum
eins og sannur Íslendingur! Þá
var stefnan sett heim, og fékk ég
Stebba sem driver á hjólastólnum
að bílunum, það var hin
besta rússibanaferð! :D Hann spíttaði
hraðar en Speedy Gonzales eftir nokkrar
kippur af Magic! :)

Drykkjunni
var haldið áfram þegar maður
var kominn heim, sem var um kl 18. Þá
fóru strákarnir líkað
drekka meira með manni :) Fengum okkur borgar
og franskar að hætti Snorra (ég
þarf að fá hann oftar í
heimsókn til að elda!) ;) Svo var
bara allt í gangi um kvöldið,
Wii var að gera stórkostlegahluti
þetta kvöldið (Danni, held að
þú fáir Wii tölvuna
þína bara aldrei til baka ;)) og
svo vorum við barað fíflast og
hella okkur blindfulla! :D Svo endaði þetta
í einhverri drykkjukeppni, rjómasprautuflippi,
Bjarki ber að ofan, aulahúmor (sem
er bestur!). Þetta var bara snilldardagur
í alla staði!

Ég
bara þakk kærlega fyrir mig strákar!
.... og bíð spenntur þangað
til að einhvert ykkar finnur sér
tjéddlingu til að giftast.... sjitt
hvað ég á eftir að hefna
mín á ykkur!! múhahaha!
;D
Þetta
er svo langt blogg að ég er orðinn
þreyttur í puttunum! Þarf
barað koma einu að til viðbótar.
Við Erla erum komin á bíl!!!!
YAAAYYYYYY!!!! YAYAYAYAYAYAYYYAAYYY!!! :D Keyptum
Nissan Sunny af honum Danna og djöfulsins
munur er að vera kominn á bíl!
Loxins! :)
p.s.
reyni að skella inn myndum frá steggjuninni
við tækifæri :)