Sælt
veri fólkið! Kominn alveg 1,5 mánuður
síðan maður bloggaði. En
ég hef nú góða afsökun
fyrir bloggleysinu - er búnað vera
busy as hell!

Þetta er helvíti - þar er
brjálað að gera hef ég
heyrt
16. júní
gengum við
Erla í það heilaga! :) Við
fengum alveg frábært veður
(sól og smá vind), miklu betra
veður en við þorðum að
vona...þar sem 17. júní
var daginn eftir og setur maður oft samasemmerki
við þann dag og rigningu. Um morguninn
kom fjölskylda Erlu og fjölskylda
mín saman til að snæða
morgunmat saman. Katrín systir (sem nú
vinnur á Toni & Guy) gerði hárið
á Erlu og vinkonum hennar. Erla fór
svo eftir það til foreldra sinna til
að klárað gera sig reddí.
Ég gerði mig til í rólegheitunum
hér heima, ásamt vinkonum hennar
Erlu. Um hádegi hittumst við Erla
til þess að láta taka myndir
af okkur saman :) ...Erlan mín var svo
ótrúlega falleg í kjólnum
sínum.. glæsilegasta og fallegasta
brúður/kona sem ég hef á
ævi minni séð! :) Eftir myndatökuna
fór ég niðrí Mosó
í Lágafellskirkju til þess
að taka á móti gestum, ásamt
pabba, mömmu og tengdómömmu.
Athöfnin byrjaði svo kl. 15:00 og var
kirkjan vel full og alveg æðislega
gaman að sjá hvað margir mættu
:) Athöfnin tók ca. hálftíma
og vorum við bæði alveg ótrúlega
sátt með hvernig hún fór
:) Stebbi
kagglinn spilaði á gítar í
kirkjunni, Sóla
söng tvö lög, og Raggi spilaði
undir sönginn hennar. Þetta var ekkert
smá flott hjá þeim öllum!
*túsend takk - enn og aftur!* :) Að
athöfn lokinni stungum við Erla af
í geeeeðveikum bíl - Rolls-Royce
Silver Shadow, árgerð 1972.

Rolls-Royce
Silver Shadow árgerð 1972
Veislan
byrjaði svo kl 16:30 og var tekið á
móti okkur með hrísgrjónarkasti.
:) Svo skáluðum við freyðivíni
með veislugestum og heilsuðum upp á
fólkið. Eftir það var gengið
inn í sjálfan veislusalinn, sem
var glæsilega skreyttur (takk fyrir alla
aðstoðina skreytingarfólk!).
Boðið var upp á glæsilega
og mjög svo öðrvísi smárétti
sem að Francois
Fons sá um. Að því
loknu var boðið upp á brúðartertu
sem að tengdómamma og vinkona hennar
sáu um að baka (takktakk!) :P
Skemmtiatriðin
í veislunni voru hreint út sagt
frábær! Jónas (tengdópaps)
sá um að kynna atriðin og upplýsa
gesti. Stuttu eftir að smáréttirnir
voru bornir fram, þá æddi
inn gífurlega vígalegur sjóræningi
með risa bassa með sér. Manni
brá nú svolítið :P
En þetta var þá víst
hluti af dagskránni. Þetta var
einn af bassaleikurum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, Dean
Ferrel, og sló hann algjörlega
í gegn að mínu mati. Algjör
snillingur þessi gaur! Síðar
um kvöldið mætti enginn annar
en Hörður
Torfa og söng hann nokkur lög
um ástina fyrir okkur og veislugesti.
Við Erla stigum svo "brúðarvalsinn"...ef
svo má kalla! :P Ég var í
göngugipsi og frekar klunnalegur, þannig
að Erla fór bara í flip-mode
og gerðum við bara einhvern bull-dans!
:D haha! Hann heppnaðist bara mjög
vel :D Ívar náði honum meirað
segja á vídjó :) Snilld!
Þórður afi spilaði á
nikkuna sína og Bjarni (kærasti
Betu) á píanó við dansinn.
Lagið sem þeir tóku heitir
"Erluvals", og var það sérstaklega
samið fyrir ömmu hennar Erlu (sem hét
líka Erla) af langafa brúðarinnar.
Þórður afi spilaði einnig
undir lagið "Erla, góða
Erla", en nýr texti var saminn í
tilefni dagsins og heitir sú útgáfa
"Erla, Bjarkans Erla". :D Pabbi samdi
svo mjög svo fallegt ljóð sem
hann las upp í veislunni. Ljóðið,
textinn, myndir o.fl. munu birtast á
brúðkaupssíðunni okkar
um leið og ég hef tíma til
að uppfæra hana frekar.

Brúðkaupssíðan - www.bdesign-web.com/wedding
Einnig
voru sýnd tvö 15 min. myndbönd
þar sem sýnd voru helstu atriði
gæsunarinnar og steggjunarinnar :D Ég
grenjaði úr hlátri!
bwahah! XD. Svo um svona 19-20 leitið þá
færðist meira fjör í leikinn
og endaði veislan/partýið ekki
fyrr en e-ð eftir kl. 01, eftir mismikla
drykkju, SingStar-söng og mikinn gleðskap!
:) Alveg frábær dagur! Ekki hægt
að þakka fólkinu nægilega
oft og mikið fyrir alla aðstoðina
og góða mætingu!
Blogga
svo fljótlega (vonandi?) um brúðkaupsferðina
(23.jún - 07.júl) og afmælispartýið
mitt (13.júl). Þangað til þá...
útsí
gútsí
og faðmið
kaktus!