23.
júlí fórum
við Erla
í brúðkaupsferð til Krítar
(í borgina Chania)
og vorum þar í tvær vikur.
Þetta var alveg einstök upplifun
og hreint út sagt frábær
staður!. Flugið til og frá Krít
var reyndar ekkert voðalega spennandi, tók
tæpa sex tíma *bleehhh*, en það
var nú algjörlega þess virði!
Við
lentum frekar seint á Krít, eða
á slaginu 23:00 (á staðartíma).
Í rútunni sem skutlaði okkur
á hótelið (Helios apts.) tilkynnti
fararstjórinn okkur um að hitabylgja
væri nýskollin á, og það
var engin smá hitabylgja! Hitabylgjan
stóð yfir í fimm daga, og
náði hitinn upp í 50°C!
... plús að sólin var geðveikt
sterk. Það var frekar erfitt að
venjast þessum hita sem Íslendingur,
en tókst þó.. það
var bara fíflast nógu mikið
í sjónum og sundlauginni við
hótelið, ásamt því
vorum við dugleg að borða léttan
mat, drekka vatn, og laaaang duglegust við
að drekka bjór!
:D Bjórinn þeirra, Mythos,
er ekkert smá góður. Er bara
farinn að sakna hans *kippir, slef og semi-fráhvarfseinkenni*.

Mythos
Hótelið
sem við vorum á (Helios)
var uber-cozy. Frekar lítið
og í ágætlega lokuðu
svæði. Við vorum samt frekar lítið
við hótelið, kannski helst til
að dífa tánum ofan í
sundlaugina, fá sér smá
nasl, eða smakka kokteila. Í staðinn
fyrir að skrifa heila BA ritgerð um
ferðina okkar út þá
ætla ég barað skella inn nokkrum
punktum úr ferðinni :)
-
Hitinn
fór upp í 50°C! (mbl.is)
-
-
Fórum
á fornminjasafn þar sem við
sáum m.a. styttu af Herkúles,
brjóstmyndir af nokkrum Rómakeisurum
(m.a. Hadrians),
nokkur þúsund ára gömul
leirker, o.fl. o.fl.
-
Það
var strönd rétt hjá hótelinu
okkar og við vorum dugleg að kíkja
þangað í tjillerí
í sólinni og buslerí
í sjónum :)
-
Ég
náði að smakka ALLA kokteilana
(oftar en einu sinni) sem voru í boði
á hótelinu :) weee!
-
Við
skoðuðum sjó- og stríðsminjasafn
þar sem við sáum m.a. módel
af ýmsum skipum, endurgerðir af
ýmsum sjóorrustum sem hafa verið
við Krít, ýmis fríkí
uppstoppuð sjávardýr, mjög
margar myndir og minjar frá WWII og
kíktum inn í herbergi sem var
búið að breyta þannig
að það væri alveg eins
og maður væri í kafbát
frá WWII.
-
Við
fórum minnsta kosti 1-2 út að
borða á hverjum degi :)
-
Vorum
ekkert voðalega dugleg við að
liggja á sólbekk og láta
sólina grilla okkur... var allt of
margt að skoða og gera þarna!
-
Við
drukkum minnsta kosti 1,5L af vatni á
dag og ekki minna en 3-6 bjóra (hitinn
maður!) ;)
-
Við
létum teikna tvær myndir af okkur;
eina skopmynd og eina alvuru.
-
Við
kynntumst alveg geðveikt fínu íslensku
fólki þarna á hótelinu.
:)
-
Pöddufælnin
hjá Erlu hvarf nánast á
meðan við vorum á Krít...
á sama tíma jókst mín
pöddufælni :P
-
Við
sáum ýmis (skor)dýr þarna
út; leðurblökur, heimilislausa
ketti og hunda sem ráfuðu um göturnar
og betluðu mat, hjúts fiðrildi,
kakkalakka, engisprettur sem að eru jafn
stórar og lófinn á Erlu
og voru engin smá læti í
þessum andskotum!, rottur, hjúts
bjöllur, Kri-Kri, drekaflugu og guð-má-vita-hvað.

Kri-Kri
-
Grikkir
keyra eins og kreisí mófós!
(a.k.a. glannar og nauðga bílflautunni
eins og faggar... samt virtist umferðin
alveg ganga vel fyrir sig)
-
Við
tókum leigubíl sem keyrði
okkur á kolvitlaust hótel, og
kallinn var svo fúll og pirraður
yfir því, að hann spíttaði
á 160 km./klst. að rétta
hótelinu...og Erla var að skíta
í sig úr hræðslu
-
Allt
var hræódýrt þarna
úti; 4-5 km. leigubílsferð
kostaði ca. 500 kr., Mythos kostaði
ca. 60-110 kr., pizza á veitingarhúsi
kostaði ca. 450 kr og kokteill á
bar kostaði um 250 kr. Við fórum
svo sjúklega fínt út
að borða á veitingahúsinu
Zefferano (þar er án efa besti
matur sem ég hef smakkað!) og pöntuðum
við okkur þrjár Spire, litla
hvítvínsflösku, humar með
viltum hrísgrjónum, stórann
hálfmána sem var bakaður
í einhverjum heví viðarofni
og kjúklingabringu með rjóma/dijon
sósu....allt þetta kostaði
um 3500 kr. samanlagt :)
-
Ég
smakkaði sverðfisk, risarækjur,
krabba, humar, fyllt vínlauf.
-
Við
fórum í klukkutíma bátsferð
frá feneysku höfninni og upp að
lítilli eyju sem var ekki langt frá
til að fylgjast með sólsetrinu...
ég get sagt ykkur að sólsetrið
var mjög fallegt... Erla veit lítið
um ferðina þar sem hún var
með lokuð augun allan tímann
og hélt fasst í mig og eitthvað
tréborð í bátnum
:) Það voru einhverjir Hollendingar
þarna sem tóku vídjómynd
af henni og læti, og hneyksluðust
frekar mikið á því
að hún væri hrædd við
að sigla á báti þar
sem við værum frá Íslandi.,..og
þaðan væri sterkasti maður
heims ættaður! :P
-
Við
tókum hestvagnarúnt um gamla
bæinn í Chania.... hesturinn
sem dróg vagninn okkar var með
bleika pæjuhúfu. XD

Hestvagnar við feneysku höfnina í
Chania

Leðurstræti
-
Ég
var enn fótbrotinn þegar við
fórum út, en fann lítið
fyrir því þannig ég
fékk lækninn til að taka
gipsið af mér daginn fyrir Krítarferðina
:) sjibby!
-
Það
voru 3 litlir sætir "villi"kettlingar
sem bjuggu úti, rétt hjá
hótelinu okkar. Við vorum mjög
dugleg að gefa þeim að borða
:) mjáwwwwww....
-
Við
héldum bæði á snák.
-
Við
skoðuðum vitann í Chania sem
var byggður árið 1570, virki
frá tíma Austrómverska
ríkisins og voru byggð ca. 1000-1200,
og moskvu frá stjórnartíð
Ottóman-veldisins í Krít.
-
Erla
fann sína uppáhalds ísbúð
ever :) Þar voru yfir 50 ístegundir
í boði...namminamm. :)
-
Fórum
í riiiiisastóra dótabúð
sem heitir Jumbo
og er á tvem hjúts hæðum...þar
keypti ég mér m.a. ninjahamstur!
:D
-
Við
kíktum á næturlífið
eitt kvöldið með öðrum
Íslendingum... og var það
frekar slappt. Samt fyndið að það
sé skandinavískur pöbb
þarna í gamla bænum.
-
Við
smökkuðum
Absenta í fyrsta skipti
-
Prufuðum
að panta skyndibita eitt kvöldið
með barþjóninum...það
var sjúklega gott...fengum hjúmangós
box með allskonar kjöti og svo franskar
með.
|