Blogg

Ég

Myndir

Contact

Tenglar

Uppfærsla
31.07.07 .

Búinn að uppfæra síðuna svolítið upp á síðkastið.


!! LITAGLEÐI !!

  • Það eru komnar inn myndir úr partýinu sem haldið var föstudaginn 13. (úúúúú!).
  • Myndir frá Krítarferðinni eru komnar inn.
  • Myndskeið úr steggjuninni og gæsuninni eru komin inn.
  • Með því að smella hér er hægt að horfa á brúðar"vals" okkar Erlu ;)
  • Á brúðkaupssíðunni eru komnar tvær myndamöppur úr brúðkaupinu og veislunni (fleiri myndir væntanlegar).
  • Ætla bráðlega að skella inn myndamöppu af Bettý, nýja kisulingnum okkar, á myndasíðuna.

!! ÉG ER LITAH%RA !!


Hehehe...stuð hjá mér. Anyways, þá var ég að finna mér nýtt forrit sem býr til myndaalbúm fyrir mig. Kosturinn við það er að það tekur engann tíma að henda inn myndum á síðuna mína og taka myndirnar miklu minna pláss á harða disknum. Gallinn við þetta er sá að þetta er flassalbúm (það þýðir ekki að stelpur séu að flassa í myndaalbúnum... bara spara ykkur tíma strákar, svo þið eyðið ekki hálftíma eða meira í að fletta í gegnum allar myndirnar mínar ;) ), og gallinn við það er að þið, kæru lesendur, getið ekki svo auðveldlega save-að myndum eins og venjulega. Spurningin er; á maður að halda áfram að nota flassið, eða vera óld skúl og fara aftur í plain html?
Var svo aðeins að dunda mér í Photoshop...



Oddur, bjór og ananas... gúdd tæms


Stebbi; verðandi súpermódel


Nýjasta Pottermyndin

< Til baka