Blogg

Ég

Myndir

Contact

Tenglar

Kvikmyndafræði / Hrollvekjur
16.09.07 .

Blessað veri fólkið! Nú eru liðnar tvær vikur af skólanum hjá manni og eru það um leið fyrstu tvær vikurnar í kvikmyndafræði hjá mér. Fyrir þá sem ekki vita þá er ég búinn með tæplega 60 einingar í sagnfræði, og ætla að taka með því 30-60 einingar í kvikmyndafræði (fer bara eftir því hvernig brautin leggst í mann). Ætlaði upphaflega að taka 90 eininga sagnfræði en útaf skorti á áhugaverðu val-námskeiðum þá skellti ég mér bara í kvikmyndafræðina, sem mér hefur nú alltaf þótt mjög áhugaverð.
Ég er í þremur 5 eininga námskeiðum þessa önn; menningarheimar, kvikmyndafræði og hrollvekjur. "Menningarheimar" hefur verið frekar leiðinlegt námskeið til að byrja með en held að það sé nú e-ð að farað lagast. Í því námskeiði er verið að fjalla um sitt lítið af hverju; trúarbrögðum, myndlist, kvikmyndir, kynjafræði o.s.frv. Í námskeiðinu "kvikmyndafræði" er farið í grunnhugtök kvikmyndalistarinnar, t.d. lýsingu, sviði, myndatöku, klippingu o.s.frv. Námskeiðið sem ég mest spenntur fyrir er án efa "hrollvekjur". Í hverri viku er 1,5 klst fyrirlestur/umræðutími og síðar í vikunni er horft á tvær hrollvekjur. Ég veit að ég er ekki einn um það að finnast námsáætlunin áhugaverð, en í námskeiðinu eigum við að lesa bækurnar:

Kvikmyndirnar sem við horfum á í námskeiðinu eru:

Auk þess flytja nemendur fyrirlestra um:

Ef þetta er ekki djúsí námsáætlun, þá veit ég ekki hvað er!! :)

< Til baka