Jújú,
manninn skrapp til Kanada
um daginn með konunni og tengdó.
Vorum þar í 6 daga í
verslunarferð í stærsu borg
Nýfundnalands; St.
John's og gistum á Holiday Inn. Þetta
var alveg helvíti vel heppnuð ferð
og kom mér bara á óvart
hvað ég kann að versla! :) Reyndar
er ninjan búinn að vera á
danska kúrnum í einhvern tíma,
þannig það var alveg kominn
tími á að kaupa sér
ný föt!
Fólkið þarna
er ekkert smá næs, kom mér
samt á óvart hvað það
eru fáar ninjur þarna úti.
En já, það er alveg fáááárááánlega
ódýrt að versla þarna.
Ég og Erla fórum t.d. í
eina fatabúð og keypti ég
mér þrjár hettupeysur og
úlpu, Erla keypti sér 3 hettupeysur,
belti og e-ð glingur. Allt þetta kostaði
10.000 kr íslenskar! Kíktum m.a.
í Wal-Mart, Old Navy, Starbucks, Chapters,
Aldo, Bootleg, Sears, Stickes, La Senza (úlalla!),
Future Shop o.fl.
Svo
þurfti maður auðvitað að
lenda í einhverju kjánalegu rugli
þarna úti, eins og Bjarka er vant
:P Eitt kvöldið þá gat
ég ekki sofnað, var barað horfa
á ruðning í TV, sötra
bjór og narta í snakk. Ætlaði
svo að kíkja niður í lobby
og kaupa mér e-ð að borða
í svona mini-nasl sjálfsala. Þá
rakst maður á einhverja gaura sem
voru vel í glasi og buðu kjallinum
upp á drykk, sem ég auðvitað
þáði! :) Þá var
þetta víst árshátíð
fasteignasala á Nýjasjálandi
og böns af einhverjum multí-millum.
Svo endaði maður í einhverju
partýi sem haldið var í einu
af hótelherbergjunum og lenti þar
á trúnó og þess háttar
skemmtilegheit, hehehe. Maður vaknaði
svo bara daginn eftir með trilljón
bisnisskort í vösunum, haha! *kjánahrollur*
Síðasta
daginn á Nýfundnalandi fórum
við fjögur á rúntinn
um St. John's. Skoðuðum
miðbæinn betur og kíktum svo
upp á Signal
Hill, þar sem ýmsir sögulegir
atburðir hafa átt sér stað,
m.a. var fyrsta lofskeytið sent þaðan
yfir Atlantshafið (árið 1901).
Nú
er barað halda áfram með lærdóminn.
Er að vinna í lokaverkefni fyrir
kvikmyndafræði, þar sem ég
mun fjalla um kvikmyndastjörnur. Ég
þarf að skila verkefninu og heimaprófinu
í hrollvekjum 3/4 des. eftir það
taka lokaprófin við. Hópurinn
sem ég er í í hrollvekjuáfanganum
hélt fyrirlestur um George
Romero um daginn og sá ég
um að klippa ca. 10 mín myndband
þar sem sýndir eru stuttur bútar
úr öllum fjórum Dead-myndum
Romeros. Smellið
hér ef þið hafið áhuga
á því að skoða myndbandið.
Til gaman má geta að fimmta Dead-myndin
er væntanleg á næsta ári
í Evrópu; Diary of the Dead.
Þangað
til næst...
ZZZZzzziiiit
on a cactus, beeee-och!