Blogg

Ég

Myndir

Contact

Tenglar

Ég
. .
Bjarki heiti ég og er 23 ára. Ég bjó í (Mosfells)sveitinni meiri hluta lífs míns en hef nú búið í borginni (101) í nokkur ár. Ég bý, ásamt unnustu minni og læðu, í kjallaranum á aldar gömlu húsi hér í v-bænum. Ekki hægt að hugsa sér betri staðsetningu, mitt á milli miðbæjarins og Háskóla Íslands og sæki ég mikið í báða þessa staði. Ég stunda sagnfræði við H.Í. og sækist eftir B.A. gráðu (til að byrja með). Hvíta kollinn (aka stúdentinn) fékk ég frá F.Á., þar útskrifaðist ég af félagsfræðibraut og upplýsinga- og fjölmiðlafræðibraut. Ég á mér ýmis áhugamál, flest eru þau græn á litinn (ef flokkað er í stafrófsröð). Ég er mikill kvikmyndaunnandi og hef auk þess mikinn áhuga á ljósmyndun, vefsíðugerð, sagnfræði, útiveru, góðum félagsskap, ferðalögum, fjölskyldunni, djammi, tónlist o.fl. o.fl. o.s.frv. o.s.frv. Starfsferill minn er frekar fjölbreyttur. Lengst vann ég hjá Landsvirkjun við að grænka okkar blessuðu eyju, einnig hef ég unnið sem aðstoðarbakari, uppvaskari, baðvöður og aðstoðarmaður hjá I.T. ráðgjöf- og hugbúnaðarþjónustu. Held að þessar upplýsingar segi margt um mig í hnotskurn og hef fáu öðru við að bæta...nema þá kannski því að Man. Utd. eru bestir! (hehe).