14.júní.2004
Viva la Sverige!
Var að horfa á Svíþjóð - Búlgaría í EM í fótbolta...úff! Þetta var snilldarleikur! :o) Lokastaðan 5 - 0 fyrir Svíþjóð. Fyrir þá sem ekki vita þá er ég 1/4 Hollendingur og held með þeim eins vitleysingur!....og svo bjó maður í Svíþjóð í ca. 2 og hálft ár þannig að maður er smá Svíi í sér! :o) Held samt frekar með Hollendingum ef ég á að vera hreinskilinn. Það er létt klikkað fólk get ég sagt ykkur...alveg yyyyndislegt! :o) Það er einmitt stórleikur á morgun, Holland - Þýskaland...humm (hux hux).. ég spái 2-1 fyrir Hollandi...Kallið mig bjartsýninsmann eða Túlípana aðdáanda, þið ráðið...en Holland skal sigra! og HANANÚ! :o) Svo var annar stórleikur í gær í EM sem var Frakkland - England. Hef ekki verið mikill aðdáandi Frakka í fótbolta og voru England með stöðuna 1- 0 þegar að 90 mín voru búnar og venjulegur leiktími búinn... þá kemur einhver franskur maður með fransbrauðið í annari og sígrettuna í hinni og skoraði 2 mörk á 1-2 mín...Þannig að lokastaðan var 1-2 fyrir Frökkum... Ég ætla bara aldrei að ganga í frakka aftur eftir þetta... kaupi mér bara úlpur eða vesti!! :oP En nóg um þetta. Ég losnaði við gipsið fyrir viku síðan og er búinn að vera gera einhverja æfingar reglulega... er allur að koma til en samt ekki kominn með allann kraftinn í höndina. Á víst að taka 2 - 3 vikur að ná fullum krafti sagði læknirinn. Svo fórum við Erla á Árbæjarsafnið um daginn þegar að það var svona æðislegt veður! Það var mjög gaman að kíkja þarna, var ekki búinn að fara þarna síðan að maður var lítill strákur :o) Erla þurfti ekki að borga neitt inn af því að hún var ekki orðin 18 ára ;o) Þæginlegt að vera svona lítil og nett og getað platað alla um aldurinn! ;o) Ég reyndar plataði hana til að gera þetta...hún ætlaði ekki að þora að "svindla" sér inn... en hvað getur maður gert... ég hef spillt dýrlingi! ;o) Svo fórum við og keyptum okkur ís og röltum eitthvað í Elliðarárdalnum, það var verí gaman og verí rómó fannst mér :o) Gaman að geta farið eitthvað út fyrir hús, alltof sjaldan sem að kemur gott veður hérna á Íslandi segi ég bara. Og vitna ég aftur í hljómsveitina Trúbrot: "Take me where the grass is green, the air is clean and the sólin skín!" ;o)

<< Til baka

Áhugavert

 
 
 
   
   
   
 
 
 
 
I do not know with what weapons World War 3 will be fought, but World War 4 will be fought with sticks and stones. ~ Albert Einstein