29.júní.2004
OHH heppí deis!
Jæja! Nú er maður búinn að fá tvær fyrirfram afmælisgjafir! weee! gaman gaman! :o) Fékk frá tha tengdós sem voru að koma frá Hollandi. Þau gáfu mér penna, sokka, trefil, regnjakka, 4 boli, Gucci ilmvatn og svo geeeðveikt töff jakka. :o) Svo fengum við Erla rafmagnstannbursta og dyrabjöllu líka *lol* Okkar dyrabjalla er nefninlega eitthvað bækluð. Erla fékk alveg helling af fötum frá sínum mútter og pútter. Sjúklega flott föt!! :o)
Svo fékk ég líka afmælisgjöfina frá henni Erlu Perlu minni! Hún gaf mér flottustu Nike skó ever bara! :o) Svo fékk ég 1 bol og 2 skyrtur, ein svona með squeres all over it og hin skyrtan er með drekum og flotterí. Og þetta er ekki ENN búið, ég fékk líka baaaaara mest flottasta jakkann sko :o) Svona svartur og melló síður, nota hann í vetur pottþétt, hann er svona heitur og kósí sko! :o) Hitaður upp by the power of love!!!! hehe! ;o) Var alveg rosalega ánægður með allar þessar fallegu gjafir!
Svo ígær fórum við með Snata til dýralæknis í sólinni. Löbbuðum bara með hana þangað í búrinu sínu, það var svo gott veður eitthvað. Snati er alveg eins og ég sko, hún byrjaði að kvæsa og urra á lækninn um leið og hún tók sprautuna fram! ;o) Greyjið lilla kisa mína! Fékk tvær sprautur og þarf ekki að fara fyrr en eftir eitt ár.

<< Til baka

Áhugavert

 
 
 
I do not know with what weapons World War 3 will be fought, but World War 4 will be fought with sticks and stones. ~ Albert Einstein