| 7.nóvember.2004
Celebration
of luuuuuuv.....
Jepps svona er nú þetta. Í
dag erum við Erla búin að vera saman í þrjú
og hálft ár!! :o) Það er ekki lítið
það nei...eða ekki á mínum mælikvarða
sko! Eldaði handa elskunni minni djúsí svínsteik
með rauðvínssósu og allskonar góðu
með því. Leigðum svo Shrek 2 og kósíuðumst
uppí sófa með kerti, teppi og nammi:o) Alveg
æði sæði sko! :o) Æ lúv hör
só möts!!!!!!
Svo kom pabbi
og Katrín í heimsókn eikkað. Alltaf gaman
að hitta þau! :o) Vorum bara eikkað að spjallast
og éta nammilaðigóða hungangsköku (mmmmmmmm!!!)............Sjæse
kristús amen! Nú er bara frí hjá mér
í sögu út önnina, á að lesa
einhverja bók. Valdi mér píslarsögu
sér Jóns Magnússonar sem var einhver prestur
að vestan sem hélt því fram að hann
væri andsetinn af einhverjum djöflum og púkum.
Verður fróðlegt að lesa það :o) Í
staðinn fær mar að sleppa sögutímunum,
þannig að löng helgi! Enginn skóli á
föstudögum vegna þess að ég er bara
í sögutíma á föstudögum! :oD
Happy happy happy!! Joy joy joy!!! Ætlaði að ná
í bókina á bókasafninu áðan
en hún var ekki inni. Á leiðinni á bókasafnið
þá lá bara sprauta með einhverju drasli
í og nálinni og alles bara liggjandi á gangstéttinni.....mar
hefur heyrt ófagrar sögur af þeim hlutum og
börnum að leika sér og óvitast eitthvað,
þannig að ég bara hringdi í lögguna
(mar er orðinn áhyggjufull húsmóðir
úr vesturbænum!) og sagði henni frá þessu.
Löggan var bara dæsandi eitthvað í símann
og bara eikkað "ooohhh..vesen.....kíkjum á
þetta einhvertímann á eftir" ....mar
er bara...ok.... eftir að eikkað barn smitist af einhverju
rugli??? URGABÍTA LÖGGIMANNINN!
BWAH!!
JÓLIN AÐ KOMA!.........góða nótt
og gleðilega páska.
<<
Til baka |