| 14.nóvember.2004
Das wíkend
Ég var í algjöru retro skapi
sinnum átta um helgina. Var bara að nördast eins
og banani í Dreamcast tölvunnni minni og einhverjum
gömlum Super Nintendo leikjum :o) Var nú algjör
timekiller frá rassi sko. Alltíeinu var bara kominn
nýr dagur eða whatever. Tók Óla í
gegn í einhverjum NBA leik (eða hitt og heldur) sem
ég á í DC....ég tapaði alveg illilega
fyrir drengnum svo sko......ég heimta re-match!!!!!
Svo á
laugardaginn þá ætlaði mar að kíkja
í eikkað partý hartý með henni Ingu
Dís en það var ekkert úr því,
partýið týndist einhversstaðar á
leiðinni og rataði ekki réttu leiðina. Þannig
að ég og Óli fórum bara að smakka
bjóra. Þeir smökkuðust alveg ágætlega
vel sko, eða allavegana héldum við áfram
að drekka þá :o) Svo kíktum við heim
til Sólu sem ég hef ekki hitt síðan að
maðurinn fór til tunglsins eða eitthvað. Hitti
þar líka kærastann hennar og vinkonu from the
Akureyri. Barasta mest næs fólk sko :o) Kærastinn
hennar Sólu var búinn að elda eitthvað rosa
posa gott handa þeim stelpunum, ég og Óli
komum einmitt í tæka tíð fyrir rósavínið
sko, hehe ;o) nammmmmms, það var very gúdd, takk
takk Sóla :o). Svo kíktum víð í
pool og eitthvað....ég sööööööökka
í pool... ég hélt að ég væri
hörmulegur.....en ég er bara verri en það
takk fyrir mig :o) Svo fór mar eikkað á Glaumbar
og Gauk á Stöng....alveg fínt sko, svo skellti
mar sér heim. Mar var svo drulluþunnur daginn eftir,
skellti í sér einhverjum 4 alka seltzer töflum
og málið var dautt! eða....svona næstum,
kannski ekki alveg :o)
Svo átti
pabbi labbi afmæli á miðvikudaginn seinasta.
AAAAaaaaalveg snilld sko :o) Verí verí næs
köki og heitur réttur og nammilaði pönnukökur
sem voru með nammilaði kanil í :o) mmmmmmm sjúbba
sjúbba gott!!!!! :o) Við Erla gáfum honum kort
og The Shining á DVD ...geðveik mynd sko, fimm stjörnur
og tvær tívólíbombur einn tveir og
núna. Fla-búmm og fla-pass. Komum ekki heim fyrr
en kl 3 eða eikkað um nóttina :o) Var svona rosa
posa gaman og spjalla og svona sko ;o)
ok...........bæbæ
<<
Til baka |