23.mars.2005
Allir að gera do-do?
Já ég segji þetta....vitiði...ég held að þessir framhaldsskólakennarar njóti þess að taka fríið hjá manni...taka það með höndunum...og stinga í það með nál og eldspítum og skemmuleggja það !!! hehe...já...ég segi þetta því að ég er búinn að verað læra hérna uppá hvern einasta dag og er bara mega pressa á manni að klára böns af dóti fyrir skólann. Var rétt í þessu að klára einhverja ömurlega sænska sakamálasögu hún var alveg hræðilega leiðinleg... svo á ég að lesa eina valbók fyrir ensku... og aðra bók fyrir íslensku ásamt hugleiðingum um bókina (sjibbí! en spennó!) ..svo á ég að skila einhverri risa skýrslu fyrir sálfræði... gera billjón verkefni í spænsku... og nokkur fleiri verkefni í sænsku.... só.... æ em tótalli eksplóding át of læri hér! Komin brunafíla af hausnum mínum ég er búinn að pæla og læra svo! hehe

Annars lítið að frétta nema það að það eru allir að GERA DO DO!!! Já fólkið mitt góða!! Ekki líta undan þessu máli hér!!... en það er kominn do-do faraldur á fólk! Allir að verða mömmur og pabbar og ekkert nema gott um það að segja.... maður ætti kannski að fá sér eitt?.. jaaa... neeeee... ekki strax Eva Dögg vinkona Erlu var að eiga barn í vikunni, ásamt Ásdísi vinkonu minni og segi ég bara til hamingju báðar tvær! Svo var ekki langt síðan að Erna poppaði út einu stykki af litlu kríli líka... Til hamingju með það aftur Erna! Og Brynja orðin ólétt!!! .. vá... það er meiri dónaskapurinn á fólki hér að vera geraða daginn inn og daginn út...ég bara fer hjá mér hehe... En til hamingju með þetta Brynja!! Þetta verður örugglega rosa rosa sætt barn. Þetta er alveg rosalegt, held að meirihlutinn af fólkinu sem maður þekkti í den sé annaðhvort orðin mamma eða pabbi eða er á leiðinni að verða það.... kreisíness!! æm telling jú!

Já svo er spurning hvort mar eigi að kíkja kannski á djammið um helgina? ... löng helgi og svona framundan... er eitthvað skemmtó að gerast? Endilega látið mig vita! Langar pínku að fá mér í tána um helgina...og kannski smá í munninn líka.. það er ekki verra... En mar sér til... ef að maður er ekki búinn að kveikja í hausnum á sér af pælingum og læringi! Hef ekkert farið að jammast síðan að Ingibjörg hélt uppá afmælið sitt með bróðir sínum....sjæse! Það var snæsagott partý eins og ég orða það fólkið mitt góða!..... jæja...ætlað farað sofa.... góða nótt!

<< Til baka

 
Áhugavert

 
 
 
   
   
   
I do not know with what weapons World War 3 will be fought, but World War 4 will be fought with sticks and stones. ~ Albert Einstein