24.april.2005
Gleðilegt sumar börnin mín góð

gleðilegt sumar! Maður er byrjaður að finna smá saman fyrir hlýjunni... ahhh.. vonandi verður þetta sólríkt og gott sumar!...samt ekki þannig að allt Ísland bráðni eins og svo margar spár benda til að gerist innan einhverja ára...söss!.. þá verður Ísland ekki lengur Ísland, heldur bara Sóley eins og einhver ágætis kall vildi kalla landið okkar árið sautján hundruð og súrkál. Sóley er nú dáldið krúttaralegt nafn á eyju... mér finnst samt ekki töff að segja að ég sé Sóleyjingur.... hljómar eins og maður sé kominn frá einhverju regnboga hommalandi Ekki það að hommar séu eitthvað skrítnir eða hættulegir... bara tek svona til orða... En nóg um þetta rugl!! Eins og sannur Íslendingur hélt ég upp á þennan hátíðardag og kvað veturinn með öli og skemmtun!! Ég, Erla og Óli vorum í mega stuði hérna í kjallaranum að hlusta á yndisfagra tónlist (aðalega Queen,..... ég eeeeelska Queen!) fórum í einhvern drykkjuleik og töluðum um furðulega hluti Við fórum svo í bæinn og kíktum örstutt á Rex þar sem að var eitthvað eftir partý fyrir Face North eða eikkað álíka... ehemm... var ekki my kind of people there (voru bara allir að horfa norður!!!...ég er meira svona að horfa-í-allar-áttir-týpan ) þannig að við fórum bara á Opus, þar getur maður allavegana dansað og talað við ágætis fólk Ég fylgdi Erlu svo heim þar sem hún varð eitthvað þreytt og fór svo aftur á Ópus að hitta Óla. Hitti þar líka Alvar og Binna, gamla skólafélaga. Við fórum svo á Glaumbar og vorum þar til kl. eitthvað 6 held ég. Ég hef ekki hlegið svona mikið lengi á djamminu! Ég lifi örugglega alveg 5 ár aukalega eftir þetta kvöld!....og er svona 1/4 heimskari eftir drykkjuna

Núna er maður bara búinn að vera að stúdera fyrir lokaprófin í skólanum...Ég fæ að sleppa við lokaprófið í þroskasálfræði þar sem ég fékk 9 á seinasta skyndiprófi!!!! Ég fer þá í samræmt próf í íslensku og ensku, félagsfræðipróf (a.k.a. stjórnmálafræði), enskupróf, íslenskupróf, sænskupróf, spænskupróf, og stærðfræðipróf.....úff það verður nóg að gera. Svo í þessari viku á maður að flytja einn fyrirlestur í sögu, skila ritgerð í félagsfræði og spænsku og nóg af verkefnum... ég er að DRUKKNA!!! ... En vonandi verður það þess virði, því að ef ég næ öllum prófunum þá er ég LOKSINS búinn með skólann og orðinn stúdent!!! JEIJ!!! Það var einmitt verið að mæla hausinn minn fyrir stúdentshúfuna....ohh! djöfull verð ég fúll ef ég fell í einhverju! Hef langt mestu áhyggjurnar af spænskunni þar sem ég bókstaflega kann ekki rass í spænsku... en er í spæ403!!

Verið hress, og ekkert stress, bless!

p.s. vitiði hvað??? ha??? nei ég hélt ekki!! En frænka mans var barasta að negla sér í titilinn "Ungfrú Suðurnes 2005"! Til hamingju með það frænka!!! *senda-hugarboð*

<< Til baka

Áhugavert

 
 
 
   
   
   
I do not know with what weapons World War 3 will be fought, but World War 4 will be fought with sticks and stones. ~ Albert Einstein