16.júní.2005
Íslenzka lýðveldið
Jæja krakkar, nú eru liðin sextíuogeitt ár síðan að stofnun íslenska lýðveldisins var formlega lýst yfir. Og viti menn og viti bændur!...það var líka rigning þá! ... 17. júní árið 1944!...þetta er greinilega bara eitthvað við þennan dag... Englarnir uppi í skýjunum eru sumsé alltaf í spreng 16 júní því þeir eru búnir að halda svo lengi í sér að þeir bara ráða ekkert við sig 17 júní...þá bara kemur ein stór spræna yfir allt Ísland. Allavegana eru það ófáir 17. júníar sem að menn muna eftir þar sem rigning hefur ekki komið við sögu. En já...allavegana, þá verður maður að vera sönn þjóðerniskempa og fá sér mjöður, brennivín og jafnvel súrsaða hrútspunga! ( eins og flestir Íslendingar borða samkvæmt Oprah þættinum um Ísland! ) til að halda upp á þennan merkilega dag! . Þarf að nýta mitt fjögurra daga frí í eitthvað skemmtilegt sko... því ég verð að vinna eins og mó-fó fyrstu helgina í júli og verslunarmannahelgina *búhú* AAaaanyways!... ég segi bara við alla gleðilega þjóðhátíð og skemmtið ykkur vel!

Skjaldamerki Íslands í gegnum tíðina

Þorskmerkið (ca. 1360 - 1903)
Fálkamerkið (1903 - 1920)
Landvættaskjaldamerkið (1919 - 1944)
Lýðveldisskjaldamerkið (1944)

Meira um skjaldamerkin...

Dagskráin 17. júní...

<< Til baka

Áhugavert

 
 
 
   
   
   
I do not know with what weapons World War 3 will be fought, but World War 4 will be fought with sticks and stones. ~ Albert Einstein