|
23.október.2005
Klukkedíklukk
Jááááá...géllan
mín hún Erla klukkaði mig og ég stend
þá víst hér fyrir framan ykkur og þarf
að segja einhverja fimm hluti um sjálfan mig....mmmaha..ok,
here it goes:
1)
Ég elska hana Erlu mín af öllu mínu
hjarta! Hún er æðislegasta og sætasta stelpa
sem til er á jörðinni!
2) Ég er að læra sagnfræði
3) Mér þykir alveg óendanlega
vænt um fjölskylduna mín!
4) Ég elska sætu kisuna mína
hana Snötu Voff!
5) Ég get verið algjört nörd!
Ok,
svona... ég veit að það er ekkert krassandi
þarna, en bara...sættið ykkur við það!
Fyrir utan að vera klukkaður þá er ég
búinn að vera gera lítð annað en að
læra seinustu eina og hálfa vikuna. Ég var
nefninlega í prófi seinasta föstudag í
sagnfræðinni, nánar til tekið í mannkynssögu
II. Bókin sem við áttum að lesa fyrir prófið
var 425 síður og á alveg ágætlega
erfiðri ensku þannig að maður var dolítið
lengi að lesa kvikindið... en fjandinn hafiða! Það
tókst! Held
að mér hafi nú gengið alveg ágætlega
á prófinu... þó maður var alveg
eftir á "aaaahhh! djöfull! ég hafði
geta bætt þessu og þessu við" en það
var ekkert hægt að gera í því vegna
þess að próftíminn var svo stuttur og
ég sat allan tíman á meðan prófinu
stóð.... Svo eftir þetta hardcore lær þá
fékk maður lúmskann tjúttfíling
í hægri fótinn og fór þá
á eitt stykki vísindaferð með sagnfræðinemunum.
Við fórum á fyrirlestur á vegum Samtök
atvinnulífsins og buðu þeir okkur upp á
þennan fína bjór. Kíktum svo til Jakobs
sem er einn af sagnfræðinemunum og skelltum okkur svo
á Pravda. Þar var "sagnfræðipakkið"
eins og það er kallað á fræðilegu
máli. Svo kíkti maður með félögum
á rúntinn og Celtic Cross... þangað til
að mig langaði svo heví mikið að dansa
að ég fór bara á Hressó og Glaumbar...
Djæsús mar...og á Glaumbar... þar var
þessi "eldri" kona...hehe , sennilega svona um
40-45 ára. Hún var alveg á kúpunni
sko, og var klædd í alveg mega gelluföt. En
viti menn mar... þetta var bara heví flassari! hahaha
!
Var flassandi brjóstunum sínum hægri vinstri
og það sama átti við um aðra staði!
Þetta var bara rugl sko! hehe. Svo endaði mar heima...alveg
daaaaaauuuuuðþreyttur og illa lyktandi eftir þessa
sígrettustybbu!
Helgina
fyrir þessa þá kíkti mar á nett
partý heima hjá henni Sólu sætu .
Hún var með svona hálfgert innflutningspartý
og..OHhhhhh! ég varð illa ástfanginn af kisunni
hennar! Hún var að fá sér svona persneskan
kisuling og hún var svo sæt að mig langaði
helst að bjóða henni með á tjúttið!
En það var bara snilldar kvöld sko!
Pís
át!
Ætlað farað læra!
<<
Til baka |