ndirbúningsferlið hefur verið langt og mikið til þessa, og heppnast alveg gífurlega vel (7-9-13!). Huga hefur þurft að mörgum hlutum, svo sem fatnaði brúðar og brúðguma, veitingum, skreytingum, staðsetinngu athafnar og margt, margt, fleira. Hér verður sagt frá undirbúningi brúðkaupsins og vilja brúðhjónin þakka þeim nánustu kærlega fyrir alla þá hjálp og allan þann stuðning sem þau hafa veitt.

Hringarnir
Hringarnir sem brúðhjónin bera eru 18kt gullhringir með áletrun að innanverðu. Hringarnir voru fengnir í Gullsmiðnum (í Mjódd) og eru þeir sömu og þau hafa borið sl. eitt og hálft ár sem trúlofunarhring.

Boðskortin
Berglind Á. Ólafsdóttir gerði myndina sem prýðir boðskortið að framan (hægt er að skoða fleiri myndir eftir hana á DeviantArt, eða einfaldlega með því að smella hér). Arnarprent sá um umbrot og útprentun. Við skreytingu umslagsins var keypt sérstök tegund af vaxi auk stimpils með mynd af rós til að þrykkja innsigli aftan á hvert boðskort.

Kirkjan
Athöfnin fer fram í Lágafellskirkju og var sú kirkja valin vegna tilfinningalegra ástæðna brúðhjónanna, þar hvílir afi brúðgumans (Bjarni Júlíusson) og amma brúðarinnar (Erla Jónasdóttir).

Veislusalurinn
Safnaðarheimili Háteigskirkju verður notaður sem veislusalur að lokinni athöfn í Lágafellskirkju. Erfitt var að finna hentugan sal sem stóðust ákveðnar kröfur nálægt Lágafellskirkju og var safnaðarheimili Háteigskirkju því fyrir valinu... (auk þess er stutt í bæinn fyrir þá sem vilja halda áfram að skemmta sér ;) )

Veitingarnar
Matreiðslumeistainn François Louis Fons sér um veitingar í veislunni og býður upp á ýmsa skemmtilega smárétti sem koma skemmtilega á óvart. Brúðartertan er bökuð og skreytt af Bubbu og Haddý (móðir brúðarinnar).

Klæðnaður brúðhjónannna
Brúðarkjóllinn er fenginn frá Brúðarkjólaleigu Katrínar. Blóm og aðrar skreytingar sá Haddý, móðir Erlu, um. Smókingföt brúðgumans eru fengin frá J. C. Penneys en pípuhatturinn á leigu hjá Brúðarkjólaleigu Katrínar.

Söngur, tónlist og önnur skemmtiatriði
Í kirkjunni söng Sólbjörg Björnsdóttir (tónlistarnemi) og sá kærasti hennar, Raggi, um undirspil á gítar. Stefán Valmundsson lék einnig á gítar í kirkjunni og spilaði í upphafi og í lok athafnarinnar. Að lokinni athöfn hófts veisla brúðhjónanna og var Jónas (faðir brúðarinnar) veislustjóri. Komu m.a. Dean Ferrel (bassi og söngur), Hörður Torfa (gítar og söngur), Þórður afi (harmónikka) þar fram. Einnig voru vinkonur Erlu með skemmtiatriði, Jón (faðir brúðgumans) flutti frumsamið ljóð o.fl.

Brúðarvalsinn
... var ekkert æfður! :P en lagið sem spilað var undir er lag sem langafi brúðarinnar samdi sérstaklega fyrir ömmu hennar sem hét Erla Jónasdóttir. Þórður (afi) spilaði lagið einhent á nikkuna og var Bjarni á píanói.

~ enn í vinnslu ~